Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn í Reykjanesbæ verður opinn fyrstu þrjár helgarnar í desember, laugardaga kl. 15–18 og sunnudaga kl. 13–16, auk Þorláksmessu kl. 18–21.
Í Aðventugarðinum geta íbúar og gestir átt saman notalegar stundir í aðdraganda jóla, notið jólaljósanna og stemningarinnar, yljað sér við eldstæðin og gætt sér á heitu kakói og sykurpúðum. Fjölbreyttir sölukofar og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna setja svo svip sinn á garðinn.
Það er tilvalið að bregða sér í bæjarrölt, koma við í Aðventugarðinum og njóta um leið þeirrar verslunar og þjónustu sem í boði er í miðbænum.
Komdu og njóttu aðventunnar með okkur!

Ævintýri og upplifanir

Kíkja á sölubásana

Skella sér á skauta á Aðventusvellinu

Heimsækja jólasveinana og grýlu

Hlusta á lifandi jólatónlist

Skoða jólaljósin

Grilla sykurpúða og fá sér heitt kakó

Taka þátt í jólaratleik

Bregða sér í bæjarrölt