Beint í efni

Erindi um sögu og starfsemi Jónshúss

Halla Benediktsdóttir, forstöðumaður Jónshúss í Kaupmannahöfn, segir okkur sögu hússins, fer yfir starfsemina og svarar fyrirspurnum gesta.

Í húsinu er íbúð Jóns og Ingibjargar, fræðimannaíbúðir og samkomustaður Íslendinga í Kaupmannahöfn með skemmtun, fróðleik og menningu að leiðarljósi.

Halla er einnig skipuleggjandi prjónahátíðarinnar Pakhusstrik sem haldin verður í 14. skiptið í september á næsta ári í Kaupmannahöfn. Þar er áherslan á færeyska, grænlenska og íslenska ull og hönnun. Halla segir frá hátíðinni og svarar spurningum gesta.

Halla Benediktsdóttir er Keflvíkingur sem búið hefur í 17 ár í Kaupmannahöfn.

Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við Bókasafn Reykjanesbæjar.

Erindi um sögu og starfsemi Jónshúss - Reykjanesbær