Laugardaginn 24. október næstkomandi mætir Fljótandi dívan í Stapalaug með tónlistar- og ljósaupplifun eftir hollensku listakonuna Victorine Pasman. Þar mætast tónlist, vatn og ljós í verki sem sækir innblástur í 17. aldar klæðnað, hollenskt landslag og sögur af hafmeyjum og skipbrotnum konum.
Vatnið verður hluti af sviðinu þegar dívan svífur um laugina og leiðir gesti inn í heim þar sem list og ímyndunarafl fléttast saman.
Hægt er að njóta sýningarinnar ofan í lauginni eða fylgjast með frá bakkanum án þess að fara í sund.
Tvær sýningar verða í boði:
- Kl. 13:00 - 15 mínútur
- Kl. 14:00 - 15 mínútur
Frítt verður bæði á sýninguna og í Stapalaug frá kl. 12:00 - 15:00!
Ekki missa af þessari mögnuðu upplifun!
Við hlökkum til að sjá ykkur.
