Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Guðrið Hansdóttir

Sýrublað

Hin ástsæla færeyska tónlistarkona Guðrið Hansdóttir snýr aftur til Íslands í október 2026 með glænýja og ferska tónlist í farteskinu!

Guðrið fagnar útgáfu sjöundu hljóðversplötu sinnar, Sýrublað, með því að leggja í umfangsmikla hringferð um landið þar sem hún mun halda 9 tónleika á tímabilinu 20. til 29. október.

Platan Sýrublað kom út fyrr á árinu við frábærar viðtökur. Um tónlistina segir Guðrið sjálf:

„Tónlistin er eins og að bíta í túnsúrublað (súru) – fersk, stökk, græn og örlítið súr.“

Platan er pródúseruð af Høgni Lisberg og einkennist af grípandi og draumkenndum indípopphljómi sem Guðrið er þekkt fyrir.

Guðrið hefur verið áberandi í færeysku og norrænu tónlistarlífi allt frá aldamótum, bæði sem sólólistamaður og sem hluti af rafpoppdúettinum BYRTA. Fyrri plata hennar, Gult myrkur, var m.a. valin plata ársins á færeysku tónlistarverðlaununum (FMA).

Á þessu ferðalagi um Ísland verður Guðrið ekki ein á ferð, heldur fær hún til liðs við sig tvo magnaða meðspilara.

Ekki missa af tækifærinu til að upplifa einn af skærustu tónlistarmönnum Færeyja í lifandi og nánu umhverfi.

Tryggðu þér miða strax!

Guðrið Hansdóttir- Blátt myrkur (Official Video)