Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Heilsuvika í Reykjanesbæ

Heilsuvika Reykjanesbæjar er haldin 5.–11. október. Alla vikuna verða fjölbreyttir viðburðir, fræðsla, hreyfing og tilboð sem stuðla að betri heilsu og vellíðan. Heilsa felst m.a. í hreyfingu, næringu, samveru, hvíld, útiveru og andlegri vellíðan.

Það er einfalt að taka þátt

Það þarf ekki stórar breytingar til að gera eitthvað gott fyrir heilsuna. Heilsuvikan er gott tækifæri til að prófa eitthvað nýtt, hreyfa sig, hitta fólk, njóta útiveru eða gefa sér tíma fyrir það sem eykur vellíðan.

Dagskráin er fjölbreytt og flest ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér fyrir neðan má sjá viðburði sem eru í boði og opnir öllum.

Tilboð í Heilsuvikunni

Fyrirtæki, félagasamtök, og aðrir aðilar í Reykjanesbæ taka þátt í Heilsuvikunni með ýmsum tilboðum og fríðindum.

  • Sporthúsið í Reykjanesbæ er með opið hús alla vikuna.
  • Betri bær býður upp á frábær tilboð víðsvegar um bæinn 2.-5. október.
  • Vatnaveröld og Stapalaug eru með frítt í sund 9. október.
  • Slysavarnardeildin Dagbjörg gefur endurskinsmerki á Bókasafni Reykjanesbæjar 9. október milli 12-17.
  • GolfKEF býður upp á tilboðsverð á bókuðum 45 mínútna tímum í golfhermi (3.750 kr).

Annað í tilefni heilsuvikunnar

  • Skólamatur býður öllum grunnskólanemum Reykjanesbæjar upp á ávöxt 7. október.
  • Sundhópur ÍRB verður með vinaviku og geta iðkendur ÍRB boðið vini eða vinkonu með sér á æfingu.
  • Leik- og grunnskólar Reykjanesbæjar halda úti fjölbreyttri heilsudagskrá.
  • Fjörheimar eru með fjölbreytta dagskrá á opnunartímum tegnda heilsuvikunni.
  • Brjóstamiðstöð Landspítala mun vera með brjóstaskimun fyrir 40 ára og eldri á í Reykjanesbæ 16.-26.nóvember. Hægt er að bóka tíma hér.

Tillögur að virkni í heilsuviku

  • Göngutúr um bæinn

  • Heilsuganga í kringum Seltjörn

  • Fjölskylduferð í Sólbrekkuskóg

  • Heimsókn til Skessunnar

  • Frisbígolf með vinunum

  • Körfubolti með félögunum

  • Út á róló

  • Fara í sund

  • Út að hjóla

  • Heimsækja söfn

Skráning

Viltu skrá viðburð eða tilboð?

Fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, íþrótta- og tómstundafélög og aðrir sem vilja taka þátt í Heilsuvikunni geta sent inn viðburði, fræðslu, þjónustu eða sérstök tilboð sem tengjast heilsu og vellíðan.

Heilsuvika í Reykjanesbæ - Reykjanesbær