Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Nýdönsk fagnar 40 ára afmæli á þessu ári og heimsækir Hljómahöllina af því tilefni. Skemmst er að minnast frábærra tónleika í húsinu í fyrra, þar sem færri komust að en vildu.

Á síðasta ári kom út plata þeirra, Í raunheimum, sem inniheldur meðal annars stórsmellinn Fullkomið farartæki. Fáar, ef nokkrar, íslenskar hljómsveitir eiga jafn marga smelli og Nýdönsk og víst er að von er á góðu þegar piltarnir heimsækja Reykjanesbæ.

Hljómsveitina skipa þeir Björn Jörundur Friðbjörnsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson og Ólafur Hólm. Þeim til aðstoðar verða Guðmundur Pétursson, gítarleikari, og Ingi Skúlason, bassaleikari.

Nýdönsk - Reykjanesbær