Ástarstjarna yfir Hraundranga og kvöldstjarna Wagners
Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Skyldi það hafa verið sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja? Í þessari veglegu söngdagskrá er saga óperunnar rakin, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. Söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er hér fléttað saman á léttleikandi hátt.
Hljómsveitarstjóri og kórstjóri: Jóhann Smári Sævarsson
Hljómsveit: Hljómsveit Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Kór: Hátíðarkór Norðuróps
Gestasöngvari: Martyna Patrycja Gesella, sópran
Í samstarfi við Norðuróp og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
