Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Menningar- og þjónustusvið

Menningar- og þjónustusvið leiðir saman fjölbreytta þjónustu og menningarstarfsemi Reykjanesbæjar. Sviðið vinnur að því að efla stafræna þróun, bæta þjónustu við íbúa og starfsfólk og styðja við öflugt menningar- og samfélagslíf. Undir sviðinu starfa menningarstofnanir sveitarfélagsins, auk eininga sem sinna upplýsingamiðlun, upplýsingatækni, vefmálum, markaðs- og kynningarmálum, verkefnastjórnun og annarri stoðþjónustu.

Hlutverk

Hlutverk Menningar- og þjónustusviðs er að leiða þróun og samræmingu menningar-, þjónustu- og upplýsingamála sveitarfélagsins með faglegum og skilvirkum hætti. Sviðið ber ábyrgð á að tryggja íbúum, gestum og öðrum hagaðilum auðvelt aðgengi að upplýsingum,  skilvirka hágæða þjónustu og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Sviðið hefur forystu um mótun og innleiðingu samræmdra vinnubragða, þar á meðal verkefnastjórnunar, þjónustuferla og stöðugra umbóta, og veitir jafnframt upplýsingatækniþjónustu og notendaaðstoð. Með því er stutt við skilvirkt innra starf, bætt þjónustuupplifun og tryggt að tæknilausnir nýtist sem best í þágu íbúa og starfsfólks.

Jafnframt vinnur sviðið markvisst að uppbyggingu jákvæðrar ásýndar Reykjanesbæjar með samræmdri upplýsingamiðlun, markaðs- og kynningarstarfi, vefþróun og öflugu menningar- og viðburðarhaldi. Sviðið styður við faglegt starf stofnanna sinna, eflir samstarf þeirra á milli og vinnur að sameiginlegum gæðum og samræmdum vinnubrögðum.

Starfseiningar sviðsins