Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Merki Reykjanesbæjar

Merki Reykjanesbæjar byggir á verðlaunatillögunni „Súla“ sem varð hlutskörpust í samkeppni um nýtt bæjarmerki árið 1996.

Innblásturinn kemur frá Eldey, móbergskletti suðvestur af Reykjanesi, þar sem ein stærsta súlubyggð heims hefur hreiður sitt. Súlan hefur lengi verið eitt helsta tákn náttúru og fuglalífs á svæðinu.

Súlan er þekkt fyrir svonefnt „súlukast“ þegar hún steypir sér úr mikilli hæð til veiða. Hreyfingin, krafturinn og samspil fugls og sjávar urðu hluti af þeirri hugmyndafræði sem merkið byggir á.

Í greinargerð með tillögunni er súlan sögð tákna:

  • lifandi samfélag
  • samstöðu og félagsanda
  • tengsl við hafið
  • athafnalíf og þrótt

Á merkinu rís hvít súla til flugs á bláum grunni sem vísar bæði til himins og hafs. Vængir fuglsins minna jafnframt á öldur sjávar.

Höfundur merkisins er Guðjón Davíð Jónsson.