Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Saga merkis Reykjanesbæjar – Súlan

Merki Reykjanesbæjar var valið í samkeppni árið 1996. Höfundur verðlaunatillögunnar, sem bar heitið Súla, er Guðjón Davíð Jónsson.

Suðvestur af Reykjanesi rís móbergskletturinn Eldey og leiðir hugann að ævarandi umbrotum jarðskorpunnar. Þar dafnar jafnframt fjörugt og lifandi samfélag, súlubyggð sem er þekkt langt út fyrir strendur Íslands og er meðal þeirra stærstu í heimi.

Margir telja súluna einn glæsilegasta sjófuglinn á norðurhveli jarðar. Veiðiaðferðir hennar, svonefnt súlukast, vekja furðu áhorfenda og forvitni þeirra sem um þær heyra. Fáheyrt er að fuglar steypi sér úr mikilli hæð ofan í hafdjúpið og grípi síðan feng sinn á uppleiðinni.

Súlubyggðin í Eldey undan Reykjanesi er einstakt náttúrufyrirbæri sem íbúar svæðisins geta verið stoltir af. Það er því vel við hæfi að bæjarfélag sem kennir sig við Reykjanes geri súluna að einkennisfugli sínum. Súlan verður þannig tákn hinnar ómetanlegu náttúru svæðisins.

Jafnframt getur hún verið tákn fyrir athafnalíf. Súlan er félagslyndur fugl og býr þétt, svo byggð hennar minnir að mörgu leyti á þéttbýli mannfólksins. Hún sækir lífsbjörg sína í sjóinn, líkt og menn á Reykjanesi hafa gert um aldir. Hún ræður jafnframt yfir flugtækninni sem varð mönnum hvati til að virkja draum sinn um að svífa sjálfir um loftin.

Á merkinu rís upp hvít súla sem tákn um lifandi samfélag. Súlan breiðir út vængina og hefur sig til flugs. En um leið eiga vængirnir að minna á hvítfyssandi öldur. Grunnflöturinn er blár, himinn og haf.

Guðjón Davíð Jónsson