Bæjarstjórn Reykjanesbæjar ræður Vilhjálm Árnason, kt. 291083-4989 sem bæjarstjóra Reykjanesbæjar kjörtímabilið 2026 til 2030. Um verksvið bæjarstjóra fer samkvæmt sveitarstjórnarlögum 138/2011 og þeim samþykktum sem bæjarstjórn setur um starfið. Að öðru leyti gilda eftirfarandi ákvæði um ráðningu þessa:
1. gr.
Laun bæjarstjóra skulu vera krónur 2.630.942 kr. - miðað við 2. júní 2026. Um er að ræða heildargreiðslu sem inniheldur yfirvinnu, álagsgreiðslur, fundarsetur sem starfinu fylgja og ekki eru greiddar af öðrum, og aðrar peningalegar greiðslur, sem eru í kjarasamningi Visku, félags háskólamenntaðra og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Laun skulu taka hækkunum samkvæmt kjarasamningum háskólamenntaðra (BHM).
Bæjarstjóri greiðir til lífeyrissjóðs lögbundið framlag gegn lögbundnu framlagi Reykjanesbæjar.
Ákveði bæjarstjóri að nýta sér heimildir til viðbótarlífeyrissparnaðar skal bærinn greiða mótframlag í samræmi við reglur/lög um viðbótarlífeyrissparnað á hverjum tíma.
2. gr.
Auk launa skv. 1. gr. fær bæjarstjóri greiddan útlagðan kostnað vegna nota bifreiðar sinnar í þágu starfs síns skv. akstursdagbók. Greitt er fyrir afnotin samkvæmt ökutækjataxta ríkisins eins og hann er á hverjum tíma.
Reykjanesbær leggur bæjarstjóra til síma, tölvu og nettengingu á heimili og greiðir notendagjöld vegna þeirra.
Risna skal greidd samkvæmt framlögðum reikningum.
3. gr.
Bæjarsjóður greiðir iðgjöld af sérstakri slysa-, veikinda- og líftryggingu.
Bæjarstjóri skal njóta allra ákvæða í kjarasamningi Visku, félags háskólamenntaðra og Sambands íslenskra sveitarfélaga eins og hann er á hverjum tíma, öðrum en þeim er varða peningalegar launagreiðslur. Bæjarstjóri skal jafnframt rækja þær skyldur sem samkvæmt kjarasamningi og siðareglum starfsfólks Reykjanesbæjar lúta að honum sjálfum og störfum hans.
4. gr.
Réttur bæjarstjóra til orlofs skal vera 30 dagar eða sem samsvarar 13,04% af mánaðarlaunum.
Nýti bæjarstjóri ekki áunninn orlofsrétt sinn innan hvers orlofsárs þá fellur hann niður þann 30. apríl ár hvert. Heimild er þó til sérstakrar undanþágu frá þessu ef verkefnastaða bæjarstjóra kemur í veg fyrir að hann geti nýtt orlofsrétt sinn að fullu. Við slíkar aðstæður er bæjarstjóra heimilt að flytja að hámarki 5 orlofsdaga yfir á næsta orlofsár.
5. gr.
Ef bæjarstjóri lætur af störfum áður en kjörtímabili lýkur skal uppsögn vera skrifleg og miðast við mánaðamót. Bæjarstjóri á rétt á að fá greidd full laun skv. 1. gr. í 6 mánuði frá starfslokum, hvort sem er á kjörtímabilinu eða að samningstíma loknum. Ef bæjarstjóri mun þiggja aðra atvinnu á tímabili biðlauna munu þau falla niður.
Reykjanesbær, 4. júní 2026
F.h. bæjarráðs
Undirritað rafrænt Undirritað rafrænt
Gunnlaugur Kárason
Formaður bæjarráðs
Vilhjálmur Árnason
bæjarstjóri Reykjanesbæjar