Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglugerð um Menningarsjóð Reykjanesbæjar

1. grein

Sjóðurinn heitir Menningarsjóður og er í umsjón Menningar- og þjónustusviðs Reykjanesbæjar.

2. grein

Markmið sjóðsins er að styðja með fjárframlögum við fjölbreytt menningarstarf í Reykjanesbæ í samræmi við menningarstefnu Reykjanesbæjar, hvort sem er á vegum lögráða einstaklinga og/eða félagasamtaka.

3. grein

Auglýst skal eftir umsóknum og styrkjum úthlutað að lágmarki einu sinni á ári. Miða skal við að öllu fjármagni sjóðsins sé úthlutað. Styrkumsóknir skulu auglýstar í byrjun árs og skulu svör liggja fyrir ekki síðar en í mars. Heimilt er að auglýsa eftir umsóknum oftar yfir árið ef aðstæða þykir til. Umsóknum er skilað rafrænt í gegnum Mitt Reykjanes.

Menningarsjóður styrkir:

  • Menningartengd verkefni sem auðga menningarlíf Reykjanesbæjar
  • Verkefni sem hafa skýr markmið, tímasetningu og fjárhagsáætlun
  • Verkefni sem samræmast Menningarstefnu Reykjanesbæjar

Menningarsjóður styrkir ekki:

  • Verkefni tengd námi
  • Ferðakostnað
  • Kaup á tækjabúnaði
  • Verkefni sem koma ekki til framkvæmda í Reykjanesbæ eða hafa ekki tengingu við bæinn
  • Verkefni sem samræmast ekki stefnu Reykjanesbæjar

4. grein

Fjárframlag til sjóðsins er samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar ár hvert auk þess sem sjóðurinn tekur við frjálsum framlögum sem ætluð eru til menningarmála í Reykjanesbæ.

5. grein

Menningar- og þjónustusvið, að höfðu samráði við menningarfulltrúa, afgreiðir umsóknir um alla styrki til menningarmála fyrir hönd bæjarstjórnar.

Menningar- og þjónustusvið getur í samráði við menningarfulltrúa haft frumkvæði að styrkveitingum og/eða viðurkenningum til félaga, fyrirtækja eða einstaklinga ef það er álitið að viðkomandi hafi stuðlað með einum eða öðrum hætti að framgangi menningar í Reykjanesbæ.

6. grein

Markmið verkefna og áætlanir um framkvæmd þeirra skulu vera skýr og raunhæf hvað varðar kostnað, tímasetningar og árangur sem stefnt er að og kröfur til ábyrgðarmanna. Listrænt, menningarlegt og/eða fræðilegt gildi verkefnisins þarf að vera ljóst. Sýnt skal fram á að styrkurinn sé líklegur til að efla menningarstarfsemi í Reykjanesbæ. Styrkurinn afhendis að verki loknu gegn framvísun reiknings og skýrslu um framvindu verkefnisins. Verkefni skulu unnin á því fjárhagsári sem úthlutað er, annars fellur styrkurinn niður. Umsækjendur skulu sýna fram á að minnsta kosti 50% mótframlag á móti styrkjum sjóðsins. Gera þarf grein fyrir því hvers eðlis mótframlagið er.

Endurskoðað og samþykkt í Menningar- og atvinnuráði Reykjanesbæjar 16.03.2022.

Uppfært 17.01.2024.