1. grein
Sjóðurinn heitir Forvarnarsjóður Reykjanesbæjar og er í vörslu bæjarsjóðs.
2. grein
Markmið sjóðsins er:
- Að styðja og styrkja forvarnastarf í Reykjanesbæ
- Að aðstoða við framkvæmd forvarnarverkefna
3. grein
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar úthlutar styrkjum úr sjóðnum samkvæmt vinnureglum.
Heimilt er að auglýsa eftir umsóknum um styrki eftir nánari ákvörðun ráðsins, en ofangreindir aðilar geta einnig veitt styrki og viðurkenningar án umsókna.
Sækja skal um í sjóðinn áður en forvarnarverkefni eru framkvæmd.
4. grein
Tekjur sjóðsins eru sem hér segir:
- Árlegt framlag bæjarsjóðs samkvæmt fjárhagsáætlun
- Frjáls framlög
- Vaxtatekjur
5. grein
Íþrótta- og tómstundaráð skipar stjórn sjóðsins og skal birta uppgjör hans árlega með fundargerðum ráðsins.
6. grein
Reglugerð þessi tekur gildi þegar bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur staðfest hana.
Samþykkt á fundi Íþrótta- og tómstundaráðs þann 1. desember 2015.