Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur Íþrótta- og afrekssjóðs ÍT

1. grein

Um styrki til íþróttafólks sem hefur verið valið í landslið Íslands í íþróttagrein sinni gilda eftirfarandi vinnureglur:

  • Sjóðurinn styrkir að jafnaði einungis landsliðsfólk sem er 25 ára eða yngra.
  • Ekki eru veittir styrkir til keppni eða æfinga með landsliðum innanlands.
  • Ef landsliðsfólk þarf að greiða einhvern hluta sjálft af flugfari eða gistingu skal það eiga rétt á styrk að upphæð 40.000 kr.
  • Landsliðsfólk sem þarf ekki að greiða flug eða gistingu á ekki rétt á styrk úr sjóðnum.

2. grein

Allar umsóknir sem berast Íþrótta- og afrekssjóði vegna landsliðsfólks skulu sendar af viðkomandi íþróttafélagi/deild sem sækir um fyrir hönd umsækjandans.

Umsóknir verða að vera rétt út fylltar. Að öðrum kosti getur ÍT frestað afgreiðslu umsókna eða hafnað þeim.

3. grein

Um styrki vegna íþróttahópa eða liða vegna keppni erlendis gilda eftirfarandi reglur:

a) Eftirtalin mót eru styrkhæf:

  • Heimsmeistaramót
  • Evrópumót
  • Norðurlandamót
  • Alþjóðleg mót þar sem viðkomandi hefur unnið sér þátttökurétt

b) Styrkupphæð fer eftir því hve margir leikmenn eru á leikskýrslu

Til dæmis í knattspyrnu alls 16 og í körfuknattleik alls 12.

Að auki er heimilt að veita allt að 4 til viðbótar sambærilega styrki.

Hámarksupphæð styrkja í hverri einstakri íþrótt innan liðs skal eigi vera hærri en samþykkt upphæð fyrir landsliðsfólk hverju sinni, sbr. lið c.

c) Æfingaferðir falla ekki undir reglur sjóðsins

Þetta nema ef um er að ræða undirbúning undir stórmót, svo sem heimsmeistaramót, Ólympíuleika, Norðurlandamót og Evrópumót, að hámarki einu sinni á ári.

4. grein

Almennar styrkveitingar til félaga og/eða deilda skulu að öllu jöfnu veittar til eflingar á unglingastarfi og fyrir góðan árangur.

ÍT er heimilt að veita styrki til aðila sem er þjálfari, fararstjóri eða fylgdarmaður, t.d. í þeim tilfellum sem viðkomandi þátttakandi er undir 18 ára aldri eða þarf á einhvern hátt á aðstoð að halda, t.d. vegna fötlunar.

5. grein

Íþrótta- og afrekssjóður styrkir íþróttaþjálfara sem stunda þjálfun hjá íþróttafélögum í Reykjanesbæ til að sækja námskeið innanlands á vegum sérsambanda að upphæð 15.000 kr.

Hámarkið til að sækja alþjóðanámskeið eða kynna sér þjálfun erlendis er 40.000 kr.

6. grein

Íþróttafélag innan ÍRB sem hlýtur Íslands- og/eða bikarmeistaratitil í liðakeppni í meistaraflokki í efstu deild (10 liðsmenn eða fleiri) fær úthlutað 1.000.000 kr. fyrir bikarmeistaratitil og 1.000.000 kr. fyrir Íslandsmeistaratitil.

Verði lið margfaldur meistari hækkar greiðslan ekki og er einungis greidd út einu sinni til viðkomandi liðs að hámarki 1.000.000 kr.

Skilyrði fyrir úthlutun þessari er að viðkomandi íþróttagrein hafi a.m.k. 100 þátttakendur eða fleiri og sé með virkt barnastarf og starfsemi fyrir bæði kyn.

Verði einstaklingur Íslandsmeistari í einstaklingsgrein skal afrekið verðlaunað ásamt öðrum Íslandsmeisturum á hófi ÍRB þann 31. desember ár hvert.

Verði einstaklingur heims- eða Evrópumeistari og/eða slái heims- eða Evrópumet er viðkomandi afhentur verðlaunaplatta frá Reykjanesbæ í tengslum við Ljósanótt.

Vakin er sérstök athygli á að einn platti er afhentur til liðs fyrir árangurinn og einstaklingar fá einn platta fyrir sín afrek.

Tilkynna skal afrekin til Íþrótta- og tómstundafulltrúa Reykjanesbæjar eins skjótt og auðið er.

7. grein

Umsóknir til sjóðsins skulu berast á þar til gerðum eyðublöðum og teljast gildar berist þær á fjárhagsári bæjarsjóðs, þ.e. á tímabilinu 1. janúar til 31. desember.

Samþykkt á ÍT ráðsfundi 12. september 2023.