I. kafli – Almenn atriði
1. gr. Lagagrundvöllur fjárhagsaðstoðar
Sveitarfélögum er skylt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV, V. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og reglur þessar.
Heimilt er að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna að viðhöfðu mati á aðstæðum og með tilvísun í reglur þessar.
Virða skal sjálfsákvörðunarrétt umsækjenda og þeir studdir til sjálfshjálpar, virkrar þátttöku og valdeflingar í mótun þjónustu sem að þeim snýr.
Skal þess gætt að upplýsa umsækjendur um réttindi sín, en jafnframt þá ábyrgð sem á þeim hvílir gagnvart sjálfum sér og öðrum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
Félagsleg ráðgjöf skal standa umsækjanda til boða, sbr. V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
Skal þjónustan miða að valdeflingu og hvatningu til virkrar þátttöku í samfélaginu og taka mið af einstaklingsbundnum þörfum og aðstæðum hvers og eins.
Jafnan skal kanna til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, svo og skal kanna rétt til aðstoðar samkvæmt lögum um námsstyrki.
Með hliðsjón af því setur bæjarstjórn Reykjanesbæjar eftirfarandi reglur um fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ.
2. gr. Markmið og inntak fjárhagsaðstoðar
Markmið fjárhagsaðstoðar hjá Reykjanesbæ er að styðja við einstaklinga og fjölskyldur til þess að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi þeirra og stuðla að velferð íbúa Reykjanesbæjar.
Við framkvæmd fjárhagsaðstoðar skal þess gætt að hvetja umsækjendur fjárhagsaðstoðar til virkrar þátttöku og valdeflingar í mótun þjónustu sem að þeim snýr og þeir studdir til sjálfshjálpar.
Skal þess gætt að upplýsa umsækjendur um réttindi sín, en jafnframt þá ábyrgð sem á þeim hvílir gagnvart sjálfum sér og öðrum.
Gefa skal sérstakan gaum að fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum barnafjölskyldna og meta sérstaklega þarfir barna vegna þátttöku þeirra í þroskandi félags- og tómstundastarfi, í samræmi við 30. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og þessar reglur.
Þá skal við framkvæmd fjárhagsaðstoðar ávallt leggja sérstakt mat á það hvaða áhrif ákvörðun hefur á barn eða börn, eftir því sem við á, sbr. 3. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Jafnan skal kanna til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, svo og skal kanna rétt til aðstoðar samkvæmt öðrum lögum.
Fjárhagsaðstoð er eingöngu ætluð til framfærslu en ekki til fjárfestinga eða greiðslu skulda.
Fjárhagsaðstoð samkvæmt reglum þessum er alltaf tímabundið úrræði.
Fjárhagsaðstoð ber að skoða sem samvinnu Reykjanesbæjar og þess sem aðstoðarinnar nýtur, þar sem stuðningur til sjálfshjálpar er leiðarljósið.
Gert er ráð fyrir því að umsækjendur um fjárhagsaðstoð séu staddir á Íslandi á þeim tíma sem fjárhagsaðstoð er veitt.
Fjárhagsaðstoð skal veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði velferðarsviðs svo sem félagslega ráðgjöf og leiðbeiningar, tilboð um starf eða önnur virkniúrræði, í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Reykjanesbær veitir einnig sérstakan húsnæðisstuðning til fjölskyldna og einstaklinga sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá fyrir húsnæði sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna.
Um sérstakan húsnæðisstuðning er fjallað í V. kafla þessara reglna.
Nr. 2025
Einstaklingur, sem allajafna ætti rétt á fjárhagsaðstoð, sem vegna vímuefnaneyslu telur sig eða er talinn hafa þörf á meðferð, skal fá til þess fjárstuðning frá velferðarsviði miðað við eina meðferð á ári.
Um aðstoð við vímuefnasjúka er fjallað í 9. mgr. 11. gr. reglna þessara.
Heimilt er að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna, sbr. IV. kafla í reglum þessum.
Fjárhagsaðstoð skal allajafna greidd eftir á, síðasta virka dag hvers mánaðar.
3. gr. Framfærsluskylda
Hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára, sbr. 1. mgr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og hjúskaparlög, nr. 31/1993.
Fólk sem er í skráðri sambúð í þjóðskrá á sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón.
Sambúðin skal hafa verið skráð í þjóðskrá í a.m.k. eitt ár áður en umsókn er lögð fram, sbr. 2. mgr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
4. gr. Form fjárhagsaðstoðar
Fjárhagsaðstoð skal að jafnaði veitt sem styrkur.
Fjárhagsaðstoð er einungis veitt sem lán óski umsækjandi þess eða könnun á aðstæðum leiði í ljós að eðlilegt sé að gera kröfur um endurgreiðslur með tilliti til eigna og framtíðartekna, sbr. reglur þessar og sbr. 22. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Lán sem veitt eru með vísan í reglur þessar eru vaxtalaus.
5. gr. Réttur fylgir lögheimili
Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram í lögheimilissveitarfélagi.
Skal umsækjandi dvelja á Íslandi á því tímabili sem hann fær fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ.
Þurfi fólk á skyndilegri aðstoð að halda í dvalarsveitarfélagi sökum slysa, veikinda eða af öðrum brýnum orsökum er dvalarsveitarfélagi skylt að veita tímabundna aðstoð.
Skal um það haft samráð við lögheimilissveitarfélag og aðstoð metin og veitt í samræmi við reglur þess.
Lögheimilissveitarfélag endurgreiðir dvalarsveitarfélagi kostnaðinn, sbr. 14. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
6. gr. Tímabil samþykktrar aðstoðar
Fjárhagsaðstoð skal að öllu jöfnu vera greidd einn mánuð í senn og skulu ákvarðanir um aðstoð að jafnaði ekki ná yfir lengra tímabil en þrjá mánuði.
Aðstæður þeirra sem fengið hafa fjárhagsaðstoð lengur en þrjá mánuði skulu kannaðar sérstaklega og félagsleg ráðgjöf veitt í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
Gera skal einstaklingsáætlun þar sem hafa skal samvinnu og samráð að leiðarljósi, sbr. 8. gr. og 58. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Í undantekningartilvikum er heimilt að veita fjárhagsaðstoð vikulega vegna sérstakra aðstæðna.
7. gr. Fjárhagsaðstoð aftur í tímann
Fjárhagsaðstoð er aldrei skylt að veita lengra aftur í tímann en fjóra mánuði frá því að umsókn er lögð fram, sbr. 3. mgr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Rökstuddar ástæður þurfa að liggja að baki ef aðstoð er veitt aftur í tímann og verður skilyrðum reglna þessara fyrir fjárhagsaðstoð að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um.
II. kafli – Umsókn um fjárhagsaðstoð
8. gr. Umsókn og fylgigögn
Sækja skal um fjárhagsaðstoð á vefsíðu Reykjanesbæjar eða í þjónustuveri ráðhúss Reykjanesbæjar.
Umsókn skal skila inn með þeim fylgigögnum sem óskað er eftir, þar með talið Nr. 2025 lögheimili, fjölskyldugerð, nafn maka eða sambúðarmaka og barna á framfæri og nákvæmar upplýsingar um tekjur og eignir, sbr. 9. gr. þessara reglna.
Umsókn skal staðfest með rafrænum skilríkjum af hálfu umsækjanda eða undirrituð á sérstakt umsóknareyðublað.
Eftir atvikum getur umsækjandi veitt öðrum skriflegt vottað umboð til að sækja um aðstoð fyrir sína hönd.
Í neyðartilvikum er heimilt að leggja umsókn fram í dvalarsveitarfélagi sbr. 14. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og 5. gr. þessara reglna.
Með umsókn skal fylgja staðfest skattframtal vegna síðastliðins árs, sbr. 24. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, yfirlit yfir allar tekjur og aðrar greiðslur til umsækjanda og maka eða sambúðarmaka þann mánuð sem umsókn er lögð fram og tvo mánuði þar á undan, þar með taldar greiðslur frá almannatryggingum, lífeyrissjóðum, Vinnumálastofnun, sjúkrasjóðum stéttarfélaga o.s.frv.
Einnig ber að skila stöðuyfirliti um innstæður í bönkum, sparisjóðum eða öðrum fjármálastofnunum fyrsta dag mánaðar í umsóknarmánuði og fyrsta dag mánaðarins á undan.
Umsækjanda ber að leggja fram dvalarleyfi, í þeim tilfellum sem það á við.
Þegar sótt er um fjárhagsaðstoð til framfærslu í fyrsta skipti eða þegar liðnir eru sex mánuðir eða lengra frá því síðast var sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu er umsækjanda skylt að sanna á sér deili með því að mæta í ráðhús Reykjanesbæjar og framvísa persónuskilríki með mynd.
Bregðist umsækjandi ekki við kröfum um að sanna á sér deili er heimilt að stöðva afgreiðslu umsóknar og/eða greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu.
Sanna skal á sér deili innan tveggja virkra daga frá því að umsókn var lögð fram, nema lögmæt forföll hamli því, s.s. veikindi eða fötlun.
Þá er hvenær sem er, við afgreiðslu umsóknar eða við greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu, heimilt að gera kröfu um að umsækjandi sanni deili á sér með því að mæta í ráðhús Reykjanesbæjar og framvísa persónuskilríki með mynd.
Bregðist umsækjandi ekki við kröfu um að sanna á sér deili er heimilt að stöðva afgreiðslu umsóknar og/eða greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu.
Þegar umsækjandi er án atvinnu skal hann skrá sig hjá Vinnumálastofnun og framvísa vottorði sem staðfestir atvinnuleysi hans, atvinnuleit og rétt til atvinnuleysisbóta.
Njóti umsækjandi réttar til atvinnuleysisbóta skal hann framvísa greiðsluseðli.
Umsækjandi skal sýna fram á virka atvinnuleit á Íslandi.
Hafi umsækjandi ekki fengið atvinnuleysisbætur vegna veikinda skal hann framvísa læknisvottorði.
Læknisvottorð skal að jafnaði ekki vera eldra en fjögurra vikna þegar það er lagt fram.
Hafi umsækjandi ekki skráð sig hjá Vinnumálastofnun, án viðhlítandi skýringa, hefur það áhrif á fjárhæð aðstoðar, sbr. 12. gr. þessara reglna.
Umsóknaraðili skal veita upplýsingar um skráningu í nám, enda eiga þeir sem sækja lánshæft nám ekki rétt á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga skv. 16. gr. þessara reglna.
Erlendum ríkisborgurum ríkis innan EES ber að framvísa staðfestingu á lögheimilisskráningu.
Réttur til fjárhagsaðstoðar getur myndast í fyrsta lagi þremur mánuðum eftir skráningu lögheimilis.
Sé umsókn ófullnægjandi eða henni fylgja ekki nauðsynleg gögn skal umsækjanda gerð grein fyrir því sem ábótavant er og honum gefinn kostur á að bæta úr þeim annmörkum innan 14 daga frá tilkynningu.
Umsókn er ekki hægt að taka til umfjöllunar og afgreiðslu fyrr en öll nauðsynleg gögn liggja fyrir.
Heimilt er að synja umsókn um fjárhagsaðstoð ef umsækjandi neitar að veita upplýsingar um fjárhag sinn og/eða maka síns eða aðrar upplýsingar samkvæmt reglum þessum.
Fjárhagsaðstoð sem er veitt á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi þess sem aðstoðina fær, er ætíð endurkræf.
9. gr. Upplýsingar um tekjur og eignir umsækjanda
Velferðarsvið getur, ef þörf krefur, aflað frekari upplýsinga um tekjur og eignir umsækjanda, m.a. hjá skattayfirvöldum, atvinnurekendum, Tryggingastofnun ríkisins, Sjúkratryggingum Íslands, Menntasjóði námsmanna, Útlendingastofnun, innlendum og erlendum lífeyrissjóðum, Vinnumálastofnun o.s.frv.
Það skal ávallt gert í samráði við umsækjanda.
Neiti umsækjandi að veita upplýsingar um fjárhag sinn eða maka/sambúðarmaka stöðvast afgreiðsla umsóknar.
III. kafli – Réttur til og útreikningur fjárhagsaðstoðar
10. gr. Mat á fjárþörf
Við ákvörðun á fjárhagsaðstoð skal grunnfjárþörf til framfærslu, eins og hún er ákvörðuð í reglum um félagslega þjónustu í Reykjanesbæ á hverjum tíma, lögð til grundvallar og frá henni dregnar heildartekjur.
Tekið skal tillit til sérstakra aðstæðna eftir því sem við á, sbr. 11. gr. þessara reglna.
11. gr. Grunnfjárhæð
Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklinga 18 ára og eldri sem reka sitt eigið heimili, getur mánaðarlega numið fullri grunnfjárhæð, eins og hún er á hverjum tíma, hér eftir grunnfjárhæð.
Upphæð fjárhagsaðstoðar er óháð því hvort barn/börn búi á heimilinu.
Upplýsingar um fjárhæðir fjárhagsaðstoðar má finna á vefsíðu Reykjanesbæjar.
Með rekstri á eigin heimili, sbr. ákvæði 1. mgr. er átt við þegar viðkomandi býr í eigin húsnæði eða leigir húsnæði og hefur skráð leigusamning sinn rafrænt í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).
Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar tekur mið af neysluvísitölu og er endurskoðuð af velferðarráði árlega í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar.
Grunnvísitala miðast við vísitölu í október 2020 (489,1 stig).
Upplýsingar um viðmið fjárhæða fjárhagsaðstoðar hverju sinni er að finna á vefsíðu Reykjanesbæjar.
Fjárhagsaðstoð til hjóna og fólks í skráðri sambúð getur mánaðarlega numið allt að grunnfjárhæð x 1,6.
Þegar einstaklingar 18 ára og eldri búa með öðrum, leigja húsnæði án leigusamnings eða með leigusamningi sem HMS tekur ekki gildan, eða búa hjá foreldrum eða ættingjum með barn á sínu framfæri, getur mánaðarlega fjárhagsaðstoð numið allt að grunnfjárhæð x 0,8.
Í þeim tilvikum sem umsækjandi býr hjá foreldrum eða ættingjum og á rétt á fjárhagsaðstoð getur mánaðarleg fjárhagsaðstoð numið allt að grunnfjárhæð x 0,4.
Til viðbótar við grunnfjárhæð skal í hverjum mánuði greidd sérstök fjárhagsaðstoð fyrir hvert barn sem er með lögheimili í sveitarfélaginu og á framfæri foreldris sem fær fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum.
Skal aðstoðin mæta kostnaði vegna daggæslu barns í heimahúsi, dvalar barna í leikskóla í allt að átta tíma og dvalar barna á frístundaheimili, síðdegishressingar í skólum og/eða þátttöku barns í þroskandi félags- og tómstundastarfi.
Um þjónustugreiðslur er að ræða sem greiðast til þjónustuveitenda.
Í þeim tilvikum sem umsækjandi er í meðferð á stofnun og er tekju- og/eða réttindalaus, getur hann sótt um fjárhagsaðstoð sem nemur vistgjaldi á stofnun og ráðstöfunarfé sem miðast við ráðstöfunarfé hjá Tryggingastofnun ríkisins eins og það er hverju sinni.
Samtals getur styrkurinn aldrei verið hærri en grunnfjárhagsaðstoð hverju sinni.
12. gr. Lækkun grunnfjárhæðar
Mæti umsækjandi ekki í boðað viðtal hjá ráðgjafa eða á boðað námskeið, er heimilt að greiða 50% af grunnfjárhæð til framfærslu, sbr. 11. gr. reglna þessara.
Ef veigamiklar ástæður, sem koma fram í mati á aðstæðum umsækjanda, mæla gegn lækkun grunnfjárhæðar er heimilt að greiða 85% af grunnfjárhæð til framfærslu til umsækjanda.
Mæti umsækjandi ekki í boðað viðtal hjá ráðgjafa eða á boðað námskeið skal meðferð máls vera í samræmi við 6. mgr. 8. gr. reglnanna.
Hafi umsækjandi hafnað atvinnu, sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa eða eigi sjálfur sök á uppsögn, skerðist réttur hans til framfærslu, sem ákveðin hefur verið samkvæmt reglum þessum, um helming þann mánuð sem hann hafnar vinnu svo og mánuð þar á eftir.
Sama gildir um umsækjanda sem sætir viðurlögum samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar í samræmi við 8. mgr. 8. gr. reglnanna.
Réttur umsækjanda skerðist með sama hætti hafi hann hafnað eða hætt þátttöku í virkniúrræði, endurhæfingu og/eða einstaklingsmiðaðri áætlun hjá ráðgjafa velferðarsviðs, sem m.a. miðar að því að umsækjandi nái vinnufærni, nema veigamiklar ástæður sem fram koma við mat á aðstæðum umsækjanda mæli gegn því.
Heimilt er að bjóða einstaklingi starf eða virkniúrræði á ný hafi hann hafnað slíku, en hafni einstaklingur því starfi eða úrræði, er heimilt að greiða honum allt að hálfri upphæð framfærslustyrks með sama hætti þann mánuð sem hann hafnar vinnu eða úrræði svo og mánuðinn þar á eftir.
Hafi fjárhagsaðstoð til einstaklings verið lækkuð í tvígang, tvo mánuði í senn, verður fjárhagsaðstoð til umsækjanda ekki skert í þriðja sinn fyrr en framkvæmt hefur verið að nýju mat á vinnufærni umsækjanda.
Taka skal mið af félagslegum aðstæðum barna áður en ákvörðun er tekin um lækkun fjárhagsaðstoðar til einstaklinga sem eru með börn á framfæri, sbr. 3. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
13. gr. Tekjur og eignir umsækjanda
Með tekjum er átt við allar tekjur einstaklings/maka sem ekki eru sérstaklega til framfærslu barna, þ.e. atvinnutekjur, allar skattskyldar tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur o.fl.
Allar tekjur einstaklingsins/maka, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsnæðis-/vaxtabætur og/eða sérstakur húsnæðisstuðningur, koma til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar.
Mæðra- og feðralaun reiknast umsækjanda til tekna.
Eigi umsækjandi rétt á atvinnuleysisbótum, skal reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna.
Hið sama á við ef umsækjandi á rétt á greiðslum frá öðrum aðilum.
Heimilt er að veita undanþágu frá tekjum fyrri mánaðar vegna einstaklinga sem eru búnir að fullnýta félagsleg réttindi sín í öðrum bótakerfum s.s. vegna atvinnuleysis, endurhæfingar og veikinda, fyrsta mánuðinn eftir að greiðslum lýkur hjá Vinnumálastofnun, Tryggingastofnun ríkisins, Sjúkratryggingum Íslands og stéttarfélögum.
Við mat á fjárhagsaðstoð er gert ráð fyrir að kostnaður vegna barna greiðist af barnabótum, meðlagi, barnalífeyri, umönnunargreiðslum og öðrum greiðslum vegna barna og eru þær ekki taldar til tekna.
Eigi umsækjandi rétt á atvinnuleysisbótum skal reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna hvort sem hann hefur staðfest atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun eða ekki, nema framvísað sé læknisvottorði.
Eigi umsækjandi rétt á öðrum tekjum, s.s. rétt á greiðslum sjúkradagpeninga frá SÍ eða stéttarfélagi ef hann er óvinnufær, skal það einnig reiknað honum til tekna hvort sem hann hefur sótt þær eða ekki.
Eigi umsækjandi, maki hans eða sambúðarmaki, eignir umfram íbúðarhúsnæði sem umsækjandi eða fjölskylda hans býr í, aðra en eina bifreið sem hann hafi til umráða eða hafi hann nýlega selt eignir sínar skal umsækjanda að jafnaði vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða, þó að tekjur viðkomandi séu undir viðmiðunarmörkum.
Litið er á peningalegar eignir og aðra fjármuni sem umsækjandi, maki hans eða sambúðarmaki eru skráðir fyrir, sem tekjur og skulu þær koma til frádráttar áður en réttur myndast til fjárhagsaðstoðar.
14. gr. Greiðslur meðlags
Heimilt er að greiða áfallandi meðlagsgreiðslur einstaklings sem fær greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu.
Greitt er beint til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.
Fjárhagsaðstoð hækkar sem nemur einu meðlagi eins og það er á hverjum tíma með hverju barni.
Átt er við meðlagsgreiðslur hverju sinni en ekki uppsafnaðar meðlagsskuldir.
Liggi fyrir samkomulag við Innheimtustofnun sveitarfélaga um greiðslu meðlagsskuldar er heimilt að greiða áfallandi meðlagsgreiðslur.
Skilyrði er að barn/börn umsækjanda séu með lögheimili á Íslandi.
15. gr. Atvinnurekendur, sjálfstætt starfandi einstaklingar og fólk í hlutastörfum
Atvinnurekendur og sjálfstætt starfandi einstaklingar, sem hafa lægri tekjur en sem nemur grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, eiga rétt á fjárhagsaðstoð að því tilskildu að þeir hafi stöðvað atvinnurekstur og leitað réttar síns til atvinnuleysisbóta í samræmi við ákvæði laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Sé umsækjandi í hlutastarfi með tekjur undir grunnfjárhæð skal gerð krafa um að viðkomandi skrái sig hjá Vinnumálastofnun og leiti að fullu starfi.
16. gr. Námsmenn
Einstaklingar sem stunda nám sem er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna eiga almennt ekki rétt á fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins.
Heimilt er að veita einstaklingi sem ekki hefur lokið grunnskóla eða framhaldsskóla vegna mikilla og langvarandi félagslegra erfiðleika og á ekki rétt á framfærslu frá öðrum, lán eða styrk til framfærslu, eina önn í senn, sé það liður í einstaklingsáætlun.
Aðstoðin miðast við fjárhagsaðstoð til framfærslu skv. 11. gr. reglna þessara.
Ætíð skal liggja fyrir mat á félagslegum aðstæðum.
Alla jafna er um að ræða fullt nám á hverri önn eða til samræmis við fyrirliggjandi einstaklingsáætlun.
Einstaklingsáætlun skal liggja fyrir þar sem markmið með námi koma fram, hvernig skuli staðið að skilum varðandi skólasókn, námsframvindu og einkunnir sem og staðfesting á hlutfallslegri þátttöku í námi ef ekki er um fullt nám að ræða.
Að jafnaði skal miða við 90% mætingu.
Einkunnum skal skilað við lok hverrar annar.
Skal námið vera liður í valdeflingu umsækjanda.
IV. kafli – Heimildir vegna sérstakra aðstæðna
17. gr. Aðstoð til tekjulágra foreldra vegna barna á þeirra framfæri
Heimilt er að veita tekjulágum foreldrum sem hafa haft tekjur sem samsvara grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar eða lægri, fjárstyrk vegna náms 16 og 17 ára barna þeirra.
Skal styrkurinn miða að því að greiða áætlaðan bókakostnað og skólagjöld.
18. gr. Greiðsla sérfræðiaðstoðar
Heimilt er að veita sérstaka fjárhagsaðstoð einu sinni á ári til greiðslu nauðsynlegra tannlækninga til einstaklinga sem hafa haft tekjur við eða undir grunnfjárhæð undanfarna 6 mánuði.
Viðmiðunarmörk aðstoðar eru að hámarki helmingur grunnfjárhæðar eins og hann er hverju sinni.
Kostnaðaráætlun tannlæknis skal fylgja með umsókn.
Heimilt er að veita einstaklingum í eftirtöldum aðstæðum fjárhagsaðstoð til greiðslu viðtala hjá sérfræðingum utan almannatryggingakerfisins s.s. félagsráðgjöfum og sálfræðingum, sem lið í umfangsmeiri aðstoð þegar einstaklingsáætlun liggur fyrir:
a. Einstaklingum eða fjölskyldum sem hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum, svo sem skyndilegum ástvinamissi eða alvarlegu ofbeldi og hafa tekjur um eða undir grunnfjárhæð.
b. Einstaklingum sem hafa átt við mikla félagslega erfiðleika að stríða og hafa tekjur um eða undir grunnfjárhæð.
Miða skal við þrjú viðtöl.
Í sérstökum tilvikum er heimilt að veita allt að 10 viðtöl.
19. gr. Útfararstyrkir
Heimilt er að veita aðstoð til greiðslu útfararkostnaðar þegar staðreynt hefur verið að dánarbúið getur ekki staðið undir útför hins látna og eigi hinn látni ekki rétt á styrk frá stéttarfélagi eða öðrum aðilum.
Viðmiðunarmörk eru 200.000 kr.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn um útfararstyrk:
- Staðfest ljósrit af skattframtali hins látna, launaseðlar og greiðsluyfirlit frá almannatryggingum og lífeyrissjóðum.
- Staðfesting frá stéttarfélagi um rétt til útfararstyrks.
- Tilkynning sýslumanns um skiptalok á grundvelli eignayfirlýsingar, sbr. 25. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991, eða einkaskiptaleyfi útgefið af sýslumanni til erfingja skv. 31. gr. sömu laga.
Heimilt er að veita tekjulágu foreldri eða foreldrum fjárhagsaðstoð vegna útfararkostnaðar barns.
Samþykkt aðstoð greiðist gegn framvísun reiknings frá útfararstofu og annarra gagna um kostnað vegna útfarar.
20. gr. Aðstoð við einstaklinga yngri en átján ára
Einstaklingar yngri en 18 ára eiga að jafnaði ekki rétt á fjárhagsaðstoð í eigin nafni.
Hafi einstaklingur yngri en 18 ára forsjá barns skal viðkomandi þó reiknuð fjárhagsaðstoð til framfærslu að fullu, að öðrum skilyrðum uppfylltum samkvæmt reglum þessum.
Einnig er heimilt að veita meðlagsskyldum einstaklingi yngri en 18 ára aðstoð til greiðslu meðlags ef sömu skilyrði eru uppfyllt.
21. gr. Styrkur til íslenskunáms fyrir erlenda íbúa
Heimilt er að veita tekjulágum íbúum af erlendum uppruna, með lögheimili í sveitarfélaginu, sem ekki eiga rétt á styrk frá öðrum aðilum, s.s. stéttarfélagi eða vinnuveitanda, styrk til íslenskunáms allt að þremur skiptum.
Styrkurinn getur numið allt að 75% af námskeiðskostnaði.
22. gr. Um fjárhagsaðstoð sem veitt er í formi láns
Þegar fjárhagsaðstoð til framfærslu er veitt í formi láns skv. 4. gr. í reglum þessum skulu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
- Fyrir liggi mat á endurgreiðslugetu umsækjanda. Aðeins skal veita lán þegar ljóst er að umsækjandi muni geta staðið í skilum með afborganir af því.
- Umsækjandi veiti skriflegt samþykki fyrir reglulegri skuldfærslu fyrir afborgunum lánsins af reikningi sínum.
- Umsækjandi skal ekki hafa fengið afskrifað lán frá Reykjanesbæ á síðustu 12 mánuðum.
Að hámarki er hægt að veita lán til jafns við þriggja mánaða framfærslu skv. 11. gr. þessara reglna.
Gildistími umsóknar er þrír mánuðir frá samþykkisdegi.
Eigi er heimilt að veita lán ef umsækjandi er með lán frá Reykjanesbæ fyrir.
23. gr. Lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu og til tryggingar húsaleigu
Heimilt er að veita þeim sem hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum, í mánuðinum sem sótt er um og þrjá mánuði þar á undan, lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu og/eða til tryggingar leiguhúsnæðis, samanlagt að hámarki 600.000 kr.
Þegar lán er veitt til fyrirframgreiðslu húsnæðis skulu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
- Umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu hjá bönkum eða lánastofnunum og leggi fram gögn því til staðfestingar.
- Fyrir liggi mat á greiðslugetu umsækjanda. Aðeins skal veita lán þegar ljóst er að umsækjandi muni geta staðið í skilum með afborganir af því og geti greitt áfallandi húsaleigu sjálfur.
- Umsækjandi veiti skriflegt samþykki fyrir reglulegri skuldfærslu fyrir afborgunum lánsins af reikningi sínum.
Þinglýstur húsaleigusamningur skal liggja fyrir eða önnur staðfesting um að samningur eigi við rök að styðjast ásamt staðfestri umsókn um húsaleigubætur.
Miða skal við að leigufjárhæð sé í samræmi við leigu á almennum markaði.
Lánið er greitt beint til leigusala eða inn á vörslubók í eigu leigusala ef um leigufélag er að ræða.
Aðstoð á grundvelli þessarar greinar er að hámarki veitt einu sinni á ári og að því skilyrði uppfylltu að önnur lán sem viðkomandi kann að hafa fengið hjá velferðarsviði, séu að fullu greidd eða í skilum.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
24. gr. Sérstök fjárhagsaðstoð í desember
Heimilt er að veita einstaklingum og fjölskyldum sem hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum sérstaka aðstoð vegna jólahalds.
Heimildin nær til þeirra sem fá greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu í desember ár hvert og þrjá mánuði á undan.
Upphæðin er 15% af viðmiðunarfjárhæð fjárhagsaðstoðar, ásamt greiðslu sem nemur hálfu meðlagi með hverju barni.
25. gr. Sérstök aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna
Heimilt er að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið er að veita markvissan stuðning.
Aðstoðin miðar að því að viðhalda árangri sem náðst hefur með úrræðum og/eða stuðningsvinnu.
Skilyrði er að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum og að einstaklingsáætlun hafi verið gerð.
Heimilt er að veita styrk til foreldra vegna sérstakra þarfa barna enda sé það hluti af umfangsmikilli stuðningsáætlun og til þess fallið að tryggja að árangur vinnu í máli viðkomandi glatist ekki.
Skilyrði er að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.
Heimilt er að veita sérstaka aðstoð til einstaklinga sem sýna fram á að þeir njóti augljóslega ekki fjárhagslegs ávinnings af því að búa með öðrum.
Gildistími umsóknar er þrír mánuðir frá samþykkisdegi.
V. kafli – Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
26. gr. Markmið
Markmið með sérstökum húsnæðisstuðningi er að lækka greiðslubyrði vegna húsnæðiskostnaðar hjá þeim sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði eða eru með íþyngjandi húsnæðiskostnað sökum lágra tekna, lítilla eigna og/eða þungrar framfærslubyrðar.
27. gr. Lagagrundvöllur
Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárstuðningur til greiðslu á húsaleigu, umfram almennar húsnæðisbætur sem veittar eru á grundvelli laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.
Sérstakur húsnæðisstuðningur er veittur á grundvelli 45. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og byggir á meginreglum þeirra laga, sbr. einkum 1. gr. og IV. kafla.
VI. KAFLI – Umsókn og skilyrði fyrir greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings
28. gr. Umsókn
Velferðarsvið Reykjanesbæjar annast afgreiðslu umsókna um sérstakan húsnæðisstuðning og viðbótarhúsnæðisstuðning í félagslegu húsnæði Reykjanesbæjar.
Umsókn skal skila rafrænt á mittreykjanes.is, þar sem fram koma upplýsingar um umsækjanda, þar með talið lögheimili, fjölskyldugerð, nafn maka eða sambúðarmaka, heimilisfólk 18 ára og eldri og börn á framfæri.
Við undirritun umsóknar veita umsækjandi og aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, heimild til að afla þeirra upplýsinga frá opinberum aðilum sem nauðsynlegt er að afla til þess að hægt sé að taka afstöðu til umsóknar, svo sem frá Vinnumálastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, skattyfirvöldum, Þjóðskrá Íslands og sýslumönnum, í samræmi við 6. mgr. 8. gr. reglnanna.
Sama gildir um heimild til að afla upplýsinga frá öðrum aðilum, svo sem viðurkenndum menntastofnunum innan hins almenna menntakerfis og leigusölum íbúðarhúsnæðis, sem nauðsynlegar eru við afgreiðslu umsóknar.
Hið sama á við um öflun nauðsynlegra upplýsinga frá sambærilegum aðilum erlendis þegar við á.
Eftirfarandi fylgigögn þurfa að fylgja með umsókn:
- Staðfesting á rétti umsækjanda til almennra húsnæðisbóta.
- Staðgreiðsluyfirlit allra heimilismanna 18 ára og eldri.
- Skattframtal allra heimilismanna 18 ára og eldri.
- Þinglýstur húsaleigusamningur vegna húsaleigu á almennum markaði.
- Húsaleigusamningur vegna félagslegs leiguhúsnæðis.
- Greiðsluáætlun Tryggingastofnunar ríkisins, ef við á.
Starfsmaður velferðarsviðs metur þörf fyrir sérstakan húsnæðisstuðning og viðbótarhúsnæðisstuðning í félagslegu leiguhúsnæði Reykjanesbæjar ef við á og skal slíkt mat fara fram innan fjögurra vikna frá því að umsókn berst.
Hafi umbeðin gögn ekki borist 30 dögum frá umsóknardegi er umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning synjað.
Þetta gildir þó ekki í þeim tilvikum ef töf á skilum á gögnum má rekja til annarra aðila en umsækjanda.
29. gr. Skilyrði fyrir samþykki umsóknar
Umsækjandi skal uppfylla eftirfarandi skilyrði til að umsókn öðlist gildi og verða skilyrðin að vera uppfyllt á meðan umsækjandi fær greiddan sérstakan húsnæðisstuðning:
- Umsækjandi skal hafa fengið samþykkta umsókn um húsnæðisbætur á grundvelli laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.
- Umsækjandi skal vera orðinn 18 ára á umsóknardegi og eiga lögheimili í Reykjanesbæ þegar sótt er um.
- Leiguhúsnæði skal vera í lögheimilissveitarfélagi nema um sé að ræða húsnæði fyrir 15–17 ára börn sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum vegna náms fjarri lögheimili, sbr. 36. gr. þessara reglna.
- Samanlagðar tekjur umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, séu undir efri tekjumörkum viðmiðunarfjárhæðar gefnum út af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, sbr. 8. gr. leiðbeininga fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings.
- Samanlagðar eignir umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, á síðastliðnu ári séu ekki hærri en ákveðnar eru af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu í leiðbeiningum fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings.
Viðeigandi gögn þurfa að fylgja til staðfestingar ofangreindum atriðum.
Við afgreiðslu umsóknar um sérstakan húsnæðisstuðning skal kanna hvort leigjandi í félagslegu húsnæði hjá Reykjanesbæ uppfylli skilyrði til viðbótarhúsnæðisstuðnings.
30. gr. Viðbótarhúsnæðisstuðningur í félagslegu leiguhúsnæði Reykjanesbæjar
Ákvörðun um viðbótarhúsnæðisstuðning við leigjendur í félagslegu húsnæði Reykjanesbæjar er metin á grundvelli hlutfalls húsaleigu af brúttótekjum heimilismanna.
Miðað skal við að kostnaður vegna húsaleigunnar sé ekki hærri en 25% brúttótekna heimilismanna.
Til að eiga rétt á viðbótarhúsnæðisstuðningi þarf umsækjandi að eiga rétt á og hafa nýtt sér almennan og sérstakan húsnæðisstuðning.
Með húsnæðiskostnaði í reglum þessum er átt við þann hluta leigufjárhæðar sem greiddur er fyrir leiguafnot af húsnæði, sbr. 1. mgr. 19. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.
VII. KAFLI – Fjárhæð og greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings
31. gr. Fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings
Sérstakur húsnæðisstuðningur er reiknaður sem ákveðið hlutfall af húsnæðisbótum þannig að fyrir hverjar 1.000 kr. fær leigjandi greiddar 600 kr. í sérstakan húsnæðisstuðning, að teknu tilliti til lækkunar samkvæmt öðrum skilyrðum 29. gr. og að teknu tilliti til áhrifa tekna samkvæmt 32. gr. þessara reglna.
Húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur geta aldrei numið hærri fjárhæð en samtals 60.000 kr.
Sú fjárhæð kemur til endurskoðunar þegar breyting verður á grunnfjárhæðum húsnæðisbóta samkvæmt lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.
Húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur geta aldrei farið yfir 75% af leigufjárhæð.
Ekki er greiddur sérstakur húsnæðisstuðningur þegar húsnæðiskostnaður að frádregnum húsnæðisbótum er 60.000 kr. eða lægri.
32. gr. Áhrif tekna á grunnfjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings
Við útreikning sérstaks húsnæðisstuðnings skal miða við tekjumörk og fjölda heimilismanna.
Tekjur undir neðri tekjumörkum skerða ekki rétt til sérstaks húsnæðisstuðnings.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fellur niður við efri tekjumörk í hverju tilfelli en skerðist hlutfallslega upp að því marki.
Viðmiðunarfjárhæð er gefin út af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, sbr. 8. gr. leiðbeininga fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings, dags. 10. júlí 2025.
Með tekjum þessum er átt við allar tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, sbr. 3. mgr. 17. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.
33. gr. Greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings
Skilyrði þess að umsækjandi fái greiddan sérstakan húsnæðisstuðning er að hann fái einnig greiddar húsnæðisbætur á grundvelli laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.
Greiðslur sérstaks húsnæðisstuðnings lúta sömu greiðslutímabilum og húsnæðisbætur, sbr. 1. mgr. 21. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.
Heimilt er að greiða sérstakan húsnæðisstuðning til leigusala samkvæmt skriflegri beiðni umsækjanda.
Sérstakur húsnæðisstuðningur skal falla niður frá og með þeim degi sem leigusamningur fellur úr gildi eða önnur skilyrði þessara reglna eru ekki lengur uppfyllt.
Í þeim tilfellum skal tilkynna umsækjanda án ástæðulauss dráttar að fyrirhugað sé að fella niður greiðslur og upplýsa um hvaða ástæður liggi að baki þeirri ákvörðun.
34. gr. Frestun greiðslna
Þegar um er að ræða frestun á greiðslu húsnæðisbóta frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að fresta greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings þar til greiðsla húsnæðisbóta fer fram hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Jafnframt er heimilt að fresta greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings þó að greiðsla húsnæðisbóta hafi farið fram enda séu ríkar og málefnalegar ástæður fyrir því.
Í framangreindum tilfellum skal tilkynna umsækjanda án ástæðulauss dráttar að fyrirhugað sé að fresta greiðslu.
VIII. KAFLI – Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15–17 ára barna
35. gr. Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15–17 ára barna
Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra eða forsjáraðila 15–17 ára barna sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum hér á landi vegna náms fjarri lögheimili.
Sérstakur húsnæðisstuðningur skal vera óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 60% af leigufjárhæð.
Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns.
Ákvæði 29.–33. gr. þessara reglna gilda ekki um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15–17 ára barna.
IX. KAFLI – Upplýsingaskylda, endurnýjun og endurskoðun ákvörðunar
36. gr. Breytingar á aðstæðum umsækjanda
Umsækjandi skal upplýsa um allar þær breytingar sem verða á aðstæðum hans og áhrif kunna að hafa á fyrirliggjandi mat á þörfum á sérstökum húsnæðisstuðningi.
37. gr. Leiðrétting á sérstökum húsnæðisstuðningi
Hafi fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings verið hærri en umsækjandi átti rétt til á umræddu tímabili ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.
Heimilt er að draga ofgreiddan sérstakan húsnæðisstuðning frá síðar tilkomnum sérstökum húsnæðisstuðningi til sama aðila á næstu tólf mánuðum eftir endurskoðun.
Hafi fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings verið lægri en umsækjandi átti rétt til á umræddu tímabili ber velferðarsviði að endurgreiða þá fjárhæð sem vangreidd var.
38. gr. Endurskoðun
Umsækjandi skal fullnægja skilyrðum reglna þessara frá því umsókn er samþykkt og á meðan hann fær sérstakan húsnæðisstuðning.
Rétt til sérstaks húsnæðisstuðnings má endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þannig að upphæð greiðslu verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda og/eða annarra heimilismanna.
Sé fjárhæð húsnæðisbóta endurreiknuð m.a. vegna nýrra upplýsinga um fjölda heimilismanna, tekjur, eignir eða húsnæðiskostnað, skal endurreikna sérstakan húsnæðisstuðning.
Umsækjanda ber að upplýsa um slíkar breytingar.
Leiði endurreikningur til breytinga á fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings skal fjárhæðin leiðrétt í samræmi við það.
39. gr. Endurnýjun umsóknar
Til þess að viðhalda gildi umsókna þarf umsækjandi að endurnýja umsókn þegar samþykkt fellur úr gildi og/eða innan 12 mánaða frá umsóknardegi og síðan á 12 mánaða fresti frá þeim degi.
Endurnýjun umsóknar skal berast í gegnum mittreykjanes.is.
Við endurnýjun umsóknar skal kanna hvort skilyrðum 29. gr. reglna þessara sé fullnægt.
X. KAFLI – Málsmeðferðarreglur
40. gr. Málsmeðferð
Um málsmeðferð gilda ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og XVI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
41. gr. Könnun á aðstæðum
Velferðarsvið Reykjanesbæjar skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin.
42. gr. Samvinna við umsækjendur
Við meðferð umsóknar, öflun gagna og upplýsinga sem og við ákvarðanatöku skal hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er en að öðrum kosti við lögráðamann eða persónulegan talsmann hans eftir því sem við á.
Sérstaklega skal gætt að frumkvæðisskyldu hvað varðar þjónustu við fatlað fólk, sbr. 32. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.
43. gr. Rangar og villandi upplýsingar
Ef sannreynt er við meðferð máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi, stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar á meðan umsækjanda er gefið tækifæri til að leiðrétta eða bæta úr annmörkum.
Ef umsókn samkvæmt reglum Reykjanesbæjar er lögð fram á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hálfu umsækjanda veldur það synjun umsóknar eða getur leitt til afturköllunar ákvörðunar.
44. gr. Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum
Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti.
Hafi starfsmenn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er leynt eiga að fara samkvæmt lögum eða eðli máls er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu samþykki viðkomandi, sbr. X. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Þagnarskylda helst eftir að starfsmaður lætur af störfum.
Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum, sbr. 15. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og 14. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
Vinnsla mála og varðveisla gagna byggist á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.
Upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga má finna í persónuverndarstefnu Reykjanesbæjar, dags. 5. júní 2018, sem er aðgengileg á vefsíðu Reykjanesbæjar.
45. gr. Leiðbeiningarskylda
Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður velferðarsviðs Reykjanesbæjar bjóða umsækjanda ráðgjöf ef þörf er á og veita upplýsingar og leiðbeina um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar.
Þá skal starfsmaður einnig upplýsa umsækjanda um þær skyldur sem kunna að hvíla á honum vegna framkvæmdar samkvæmt reglum þessum.
46. gr. Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum
Starfsmenn velferðarsviðs Reykjanesbæjar taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði velferðarráðs Reykjanesbæjar.
Velferðarráði er heimilt að veita undanþágu frá reglum þessum ef sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir og notandi fer fram á það með sérstakri beiðni innan fjögurra vikna frá því notanda barst vitneskja um íþyngjandi ákvörðun.
Slíkar beiðnir eru lagðar fyrir áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar, sbr. 49. gr. reglna þessara.
47. gr. Niðurstaða og rökstuðningur synjunar
Sé umsókn synjað skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan til viðeigandi ákvæða þessara reglna.
Þar skal jafnframt kynntur réttur umsækjanda til frekari rökstuðnings og réttur til að áfrýja afgreiðslunni.
48. gr. Málskot
Umsækjandi hefur fjögurra vikna frest til að vísa máli sínu til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar.
Ákvörðun hennar er hægt að skjóta til úrskurðarnefndar velferðarmála, innan þriggja mánaða, sbr. 5. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála, nr. 85/2015.
49. gr. Áfrýjunarnefnd
Velferðarráð felur áfrýjunarnefnd, skipaðri tveimur fulltrúum úr ráðinu, einum frá meirihluta og öðrum frá minni hluta, afgreiðslu umsókna sem falla utan reglna um félagslega þjónustu í Reykjanesbæ.
Ákvarðanir áfrýjunarnefndar eru endanlegar varðandi fjárhagsaðstoð, en þó skal leita samþykkis velferðarráðs og/eða bæjarstjórnar fyrir meiriháttar fjárhagsaðstoð.
50. gr. Gildistaka
Reglur þessar taka þegar gildi.
Jafnframt falla brott eldri reglur Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð.
Samþykkt af velferðarráði Reykjanesbæjar 9. október 2025.
Staðfest af bæjarstjórn 21. október 2025.
Reykjanesbæ, 29. október 2025.
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.
B-deild – Útgáfudagur: 2025