Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur Reykjanesbæjar um stuðningsþjónustu

I. Kafli

Almennt um stuðningsþjónustu

1. Lagagrundvöllur
Í reglum þessum er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. 25.- 27. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, og 1. tl. 1. mgr. 13. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999.

2. Markmið
Markmið stuðningsþjónustu er að styðja, þjálfa og leiðbeina notendum sem þurfa, aðstæðna sinna vegna, á stuðningi að halda við heimilishald og athafnir daglegs lífs til þess að geta búið heima, bjargað sér sjálfir og verið félagslega virkir. Stuðningur byggist fyrst og fremst á þeim markmiðum sem notandi setur sér til að ráða við daglegt líf.

3. Stuðningur
Stuðningsþjónusta samkvæmt reglum þessum er veitt á grundvelli 1.mgr.26.gr.laga um félagsþjónustu sveitafélaga nr. 40/1991.

Stuðningsþjónusta er til handa þeim sem búa á eigin heimilum og þurfa stuðning vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags eða veikinda. Stuðningsþjónusta samkvæmt reglum þessum er veitt bæði innan heimilis og utan.

Með stuðningsþjónustu í reglum þessum er átt við eftirfarandi stuðning:

  • a) Stuðningur við athafnir daglegs lífs, sem tekur mið af metnum stuðningsþörfum.
  • b) Stuðningur við heimilishald er stuðningur við þau verk sem þarf að leysa af hendi á heimili notanda svo hann geti búið heima. Auk þess er veittur stuðningur við að nýta velferðartækni sem auðveldar notanda heimilishald og starfsfólki að veita þjónustuna.
  • c) Félagslegur stuðningur hefur það markmið að styðja og hvetja notanda til félagslegrar þátttöku.
  • d) Heimsendingar matar er fyrir þá notendur sem ekki geta annast matseld sjálfir og hafa ekki tök á að sækja mötuneyti.

Við veitingu stuðnings skal leitast við að nýta stafrænar og tæknilegar lausnir. Skal það háð samráði við viðkomandi einstaklings.

II. Kafli

Skilyrði fyrir stuðningsþjónustu

4. Skilyrði fyrir því að umsókn um stuðningsþjónustu verði samþykkt
Umsækjandi skal uppfylla öll eftirtalin skilyrði til að fá stuðningsþjónustu samkvæmt reglum þessum.

  • a) Umsækjandi skal vera orðinn 18 ára.
  • b) Umsækjandi skal eiga lögheimili í Reykjanesbæ þegar sótt er um.
  • c) Umsækjandi skal búa í sjálfstæðri búsetu. Einstaklingar, sem búa á hjúkrunarheimili eða stofnun þar sem greidd eru daggjöld frá ríkinu, eiga ekki rétt á þjónustu skv. reglum þessum. Umsækjendur í búsetuúrræðum þar sem veitt er sólarhringsþjónusta eiga ekki rétt á stuðningsþjónustu.
  • d) Umsækjandi skal vera metinn í þörf fyrir stuðningsþjónustu samkvæmt 6. gr. þessara reglna.

III. Kafli

Umsóknir og mat

5. Umsókn
Sækja skal um stuðningsþjónustu með rafrænum hætti mittreykjanes.is eða á þar til gerðu eyðublaði.

Umsókn skal fylgja vottorð frá viðurkenndum sérfræðingum/fagaðilum.

Með undirritun á umsókn er umsækjandi upplýstur um heimild velferðarsviðs til að afla nauðsynlegra gagna frá starfsfólki heilbrigðisþjónustu svo hægt sé að afgreiða umsóknina. Hafi umsækjandi ekki skilað viðeigandi gögnum innan 30 daga frá umsóknardegi er umsókn hans synjað. Þetta gildir þó ekki í þeim tilvikum þegar töf á skilum á gögnum má rekja til annarra aðila en umsækjanda.

Synjun á stuðningsþjónustu skal ávallt vera skrifleg og rökstudd og þar skal koma fram réttur til áfrýjunar.

6. Mat á stuðningsþörf
Umsóknir um stuðningsþjónustu eru metnar af matsteymi og haft er samband við umsækjanda að jafnaði innan tveggja vikna frá því að umsókn berst. Mat á stuðningsþörf fer fram í samvinnu við umsækjanda. Við matið er tekið tillit til markmiða og þarfa umsækjanda, líkamlegs og andlegs heilsufars, félagslegrar virkni, styrkleika og félags- og fjölskylduaðstæðna og færni hans til að sinna athöfnum daglegs lífs. Þegar aðstoð við heimilishald er metin og fleiri fullorðnir einstaklingar búa á heimilinu skal skoðuð heildarmynd þjónustu við heimilið áður en tekin er ákvörðun um stuðningsþjónustu.

Við mat á stuðningsþörf er horft til heildaraðstæðna umsækjanda og skipulags daglegs lífs. Mat á stuðningsþörf nær einnig til möguleika á að nýta tækni, hjálpartæki og/eða þess að breyta verklagi í athöfnum daglegs lífs með tilliti til nýrrar tækni. Við mat á stuðningsþörf skal einnig taka mið af mati samkvæmt viðeigandi matstækjum.Markmiðið er að þjálfa og styðja umsækjanda til að leita bestu mögulegu lausna við heimilishald og athafnir daglegs lífs, til þess að hann geti búið heima, bjargað sér sjálfur og verið félagslega virkur.

Þegar mat á stuðningsþörf hefur verið framkvæmt er umsóknin tekin fyrir á afgreiðslufundi stuðningsþjónustu og þar er tekin ákvörðun um innihald, umfang og eðli þess stuðnings sem veittur er.

Umsækjandi fær skriflegt svar þar sem fram kemur hvernig umsókn hans hefur verið afgreidd. Þegar umsókn um stuðningsþjónustu hefur verið samþykkt af matsteymi er gerð stuðningsáætlun og/eða þjónustusamningur og stuðningur getur hafist.

Sé niðurstaða mats sú að aðstæður umsækjanda séu ekki með þeim hætti að þörf sé á stuðningi ber að synja umsókninni skriflega.

7. Þjónustusamningur og/eða stuðningsáætlun
Gerð skal skrifleg stuðningsáætlun og/eða þjónustusamningur milli aðila þegar þjónusta hefur verið samþykkt. Í þjónustusamning og/eða stuðningsáætlun skal setja þau atriði sem varða notendur á viðkomandi heimili ásamt nauðsynlegum upplýsingum fyrir umsækjanda og starfsmann stuðningsþjónustu.

Í þjónustusamning og/eða stuðningsáætlun skal m.a. koma fram:

  • Hvaða stuðning er um að ræða.
  • Markmið með stuðningi og hvernig þeim skuli vera náð.
  • Lengd þjónustusamnings.
  • Upplýsingar varðandi heimili og aðstæður

Samningur um stuðningsþjónustu getur verið frá einum til tuttugu og fjóra mánaða. Lengd þjónustusamnings er ávallt háð faglegu mati starfsmanna stuðningsþjónustu velferðarsviðs.

Sé ekki unnt að hefja stuðning um leið og umsókn er samþykkt skal tilkynna umsækjanda um ástæður þess og hvenær áætlað er að stuðningur geti hafist

8. Forgangsröðun umsókna
Fullnægi umsækjandi skilyrðum 4. gr. reglna þessara um stuðningsþjónustu raðast umsóknir í forgangsröð með hliðsjón af mati Reykjanesbæjar á stuðningsþörf umsækjanda, sbr.fylgiskjal 1. með reglum þessum um forgangsþjónustu á stuðningsþjónustu.

Sé ekki unnt að hefja stuðning um leið og umsókn er samþykkt skal tilkynna umsækjanda um ástæður þess og hvenær áætlað er að stuðningur geti hafist.

V. Kafli

Framkvæmd

9. Gjaldtaka
Greitt er fyrir stuðningsþjónustu, þ.e. stuðning við heimilisþrif og heimsendan mat samkvæmt gildandi gjaldskrá sbr. 4. mgr. 26. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.

Undanþegnir gjaldskyldu hvað varðar stuðning við heimilisþrif eru þeir sem einungis hafa tekjur samkvæmt framfærsluviðmiði Tryggingastofnunar ríkisins eða þar undir.

10. Tími og umfang stuðnings
Almennt er stuðningsþjónusta veitt á dagvinnutíma á virkum dögum. Um kvöld og helgar er veittur stuðningur við nauðsynlegar athafnir daglegs lífs.

Stuðningur samkvæmt reglum þessum er veittur í samræmi við einstaklingsbundnar þarfir. Ákvörðun um stuðningsþjónustu felur í sér að stuðningur sé að jafnaði veittur í tiltekinn fjölda skipta mánuði eða í viku hverri á grundvelli mats á stuðningsþörfum. Í samræmi við 5. mgr. 26. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 er gert ráð fyrir því almenna viðmiði að hámark veittrar aðstoðar geti numið allt að 15 klukkustundum í viku.

11. Endurmat
Þegar færni notenda til að sinna athöfnum daglegs lífs eða félags- og fjölskylduástæður breytast skal endurmeta stuðningsþörf. Almennt skal endurmeta þörf fyrir stuðning eigi sjaldnar en á 12 mánaða fresti. Þar sem fyrirsjáanlegt er að þörf fyrir stuðning verði langvarandi, skal fara fram endurmat á 24 mánaða fresti

12. Breyttar aðstæður
Notanda ber að upplýsa Velferðarsvið Reykjanesbæjar um breytingar á högum sínum sem áhrif kunna að hafa á fyrirliggjandi mat á þeim. Ef um er að ræða verulegar breytingar eftir að umsókn hefur verið samþykkt er heimilt að endurskoða gildistíma samþykkis og þjónustusamning og/eða stuðningsáætlun.

V. Kafli

Ýmis ákvæði

13. Kostnaður
Notenda ber að greiða fyrir sjálfan sig allan þann kostnað sem hlýst af því þegar félagslegur stuðningur er veittur undan heimilis. Velferðarsvið Reykjanesbæjar endurgreiðir starfsmanni útlagðan kostnað hans vegna félagslegs stuðnings. Útlagður kostnaður starfsmanns skal tengdur þeim markmiðum sem sett er í þjónustusamning og/eða stuðningsáætlun.

14. Ferðir
Meginreglan er sú að almenningssamgöngur séu notaðar þegar félagslegur stuðningur er veittur utan heimilis.

15. Lyklahús
Í þeim tilvikum þar sem notendur eru ekki heima á meðan þjónusta er veitt eða vegna annarra aðstæðna þurfi að veita starfsfólki aðgang að heimili skulu setja upp lyklahús og afhenda starfsfólki lykilnúmer að þeim.

16. Fjármunir notenda
Starfsmönnum stuðningsþjónustu er óheimilt að fara með fjármuni notenda.

17. Vinnuaðstæður starfsmanna stuðningsþjónustu
Aðstæður á heimili notanda skulu vera í samræmi við lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr.46/1980 og skal tryggt að gætt sé fyllsta öryggis og góðs aðbúnaðar.

Sé aðbúnaði og/eða öryggi starfsfólks ógnað á heimilinu, t.d. vegna óreglu eða áreitni notanda getur þurft að fresta stuðningi á meðan unnið er í málinu og úrbætur gerðar.

Notendur gangast inn á að reykja ekki meðan starfsmenn eru inni á heimilinu.

V. Kafli

Málsmeðferð

Um málsmeðferð gilda ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði XVI. og XVII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

18. Viðeigandi aðlögun
Við alla vinnslu og meðferð umsókna samkvæmt reglum þessum skal tryggja að viðeigandi stuðningur, aðstoð og leiðbeiningar séu veittar til að einstaklingur geti nýtt sér stuðninginn. Í því felst m.a. að upplýsingar séu settar fram á því formi sem viðkomandi einstaklingur getur nýtt sér, tryggt sé að hann komi sínum sjónarmiðum á framfæri og sé kynntur réttur sinn til að vísa máli sínu lengra, telji hann þörf á.

19. Könnun á aðstæðum
Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að beiðni um viðtal berst. Sama á við ef velferðarsviði berast upplýsingar um nauðsyn á aðstoð með öðrum hætti. Velferðarsvið Reykjanesbæjar skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin.

20. Samvinna við umsækjanda
Við meðferð umsóknar, öflun gagna og upplýsinga sem og við ákvarðanatöku skal hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er en að öðrum kosti við lögráðamann eða persónulegan talsmann hans eftir því sem við á.

21. Endurskoðun
Rétt til stuðningsþjónustur samkvæmt reglum þessum má endurskoða hvenær sem er. Meta skal hvort umsækjandi fullnægi skilyrðum reglna þessara og hvort breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda og/eða annarra heimilismanna hafi áhrif á rétt hans og umfang stuðnings.

22. Rangar eða villandi upplýsingar
Ef sannreynt er við meðferð máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi, stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar á meðan umsækjanda er gefið tækifæri til að leiðrétta eða bæta úr annmörkum.

Ef umsókn um stuðningsþjónustu hefur verið samþykkt og í ljós kemur síðar að hún var byggð á röngum eða villandi upplýsingum af hálfu umsækjanda getur það leitt til afturköllunar ákvörðunar.

23. Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum
Málsgögn er varða persónulega hagi umsækjenda skulu varðveitt á öruggan hátt í samræmi við lög um opinber skjalasöfn nr. 77/2014, skjalavistunaráætlanir og reglur Reykjanesbæjar.

Starfsmenn eru bundnir þagnarskyldu um málefni umsækjanda er leynt eiga að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Starfsmönnum er óheimilt að rjúfa trúnað nema að fengnu samþykki viðkomandi. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.

Umsækjandi getur óskað eftir aðgangi að fyrirliggjandi gögnum er varða hann sjálfan. Við mat á því hvaða gögnum verður miðlað skal meðal annars litið til ákvæða persónuverndarlaga, upplýsingalaga auk annarra laga og reglna sem kunna að eiga við hverju sinni.

Vinnsla mála og varðveisla gagna byggist á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga má finna í persónuverndarstefnu Reykjanesbæjar sem aðgengileg er á vefsíðu bæjarins.

24. Leiðbeiningar til umsækjanda
Við afgreiðslu umsóknar skal starfsfólk velferðarsviðs Reykjanesbæjar bjóða umsækjanda ráðgjöf ef þörf er á og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Þá skal starfsmaður einnig upplýsa umsækjanda um þær skyldur sem kunna að hvíla á honum vegna framkvæmdar samkvæmt reglum þessum

25. Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum
Starfsmenn velferðarsviðs Reykjanesbæjar taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði velferðarráðs Reykjanesbæjar

26. Niðurstaða og rökstuðningur synjunar
Kynna skal niðurstöðu umsóknar og mats á stuðningsþörf svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn synjað skal umsækjandi fá svar þar sem vísað er með skýrum hætti til viðeigandi lagaákvæða og/eða ákvæða í reglum þessum og leiðbeint um heimild til að óska rökstuðnings fyrir synjun.

Upplýsa skal umsækjanda um rétt hans til að fara fram á að áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar taki umsóknina til meðferðar en slík beiðni skal berast nefndinni innan fjögurra vikna frá því að umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun.

27. Heimild áfrýjunarnefndar Reykjanesbæjar til að veita undanþágu frá reglum þessum

28. Kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála
Umsækjandi getur kært ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að umsækjanda var kunngerð ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar.

29. Gildistaka
Reglur þessar kveða á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita og eru settar með stoð í 25.-27. gr laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum, og 1.tl.1.mgr.13 gr. Laga um málefni aldraða nr. 125/1999. Reglur þessar tóku í gildi 19.09.2023.

Jafnframt falla þá úr gildi reglur um félagslega heimaþjónustu í Reykjanesbæ sem samþykktar voru á fundi velferðarráðs 25.febrúar 2016 og í bæjarstjórn 15.mars 2016.

Samþykkt í velferðarráði Reykjanesbæjar 14.09.2023

Samþykkt í bæjarstjórn Reykjanesbæjar 19.09.2023


Forgangsröðun á stuðningsþjónustu

Flokkur 1 - Mjög mikil stuðningsþörf
Líkamleg, andleg og félagsleg líðan og/eða færni er með þeim hætti að umsækjandi þarf daglega aðstoð og eftirlit við athafnir daglegs lífs, heimilishald og félagslegan stuðning. Á einnig við ef umsækjandi hefur verið metinn af Færni og heilsumatsnefnd fyrir varanlega búsetu á hjúkrunarheimili en er enn búsettur á eigin heimili. Þörf er fyrir mjög mikinn stuðning á meðan beðið er eftir að búseta á hjúkrunarheimili hefjist.

Flokkur 2 - Mikil stuðningsþörf
Líkamleg, andleg og félagsleg líðan og/eða færni er með þeim hætti að umsækjandi þarf leiðbeiningar, þjálfun, stuðning og eftirlit við athafnir daglegs líf, heimilishald að minnsta kosti einu sinni í viku. Umsækjandi þarf stuðning við þau verk sem þarf að leysa af hendi á heimili notanda svo hann geti búið heima. Umsækjandi er í þörf fyrir félagslegan stuðning, innan eða utan heimilis


Flokkur 3 - Meðal stuðningsþörf
Á við þegar umsækjandi er í þörf fyrir félagslegan stuðning, innan eða utan heimilis vegna félagslegrar einangrunar. Markmiðið er að styðja notanda til félagslegrar þátttöku, s.s. í félagsstarfi. Á einnig við þegar umsækjandi á við alvarleg veikindi að stríða, s.s. heilabilun eða langvinna sjúkdóma og aðstæður eru með þeim hætti að nauðsynlegt er að létta álagi af heimilinu.


Flokkur 4 - Væg stuðningsþörf
Á við þegar umsækjandi er sjálfbjarga en þarf leiðbeiningar, þjálfun og stuðning við heimilishald s.s. með almennum heimilisþrifum einu til tvisvar sinnum í mánuði.