Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur Tómstundasjóðs Reykjanesbæjar

1. grein

Sjóðurinn heitir Tómstundasjóður Reykjanesbæjar og er í vörslu bæjarsjóðs.

2. grein

Sjóðurinn veitir styrki og viðurkenningar eftir nánari ákvörðun Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar, ÍT.

3. grein

Markmið sjóðsins er að styrkja virk tómstundafélög og bandalög þeirra í bæjarfélaginu til að halda uppi öflugu félags- og tómstundastarfi.

Að öðru jöfnu skulu aðildarfélög Tómstundabandalags Reykjanesbæjar (TRB) hafa forgang vegna styrkveitinga úr sjóðnum.

4. grein

ÍT ráð og íþrótta- og tómstundafulltrúi úthluta styrkjum úr sjóðnum.

Heimilt er að auglýsa eftir umsóknum um styrki eftir nánari ákvörðun hverju sinni, en getur einnig veitt styrki og viðurkenningar án umsókna að eigin frumkvæði.

5. grein

Tekjur Tómstundasjóðs eru sem hér segir:

  • Árlegt framlag bæjarsjóðs samkvæmt fjárhagsáætlun
  • Frjáls framlög
  • Vaxtatekjur

6. grein

ÍT hefur umsjón með Tómstundasjóði og skal birta uppgjör hans árlega með reikningum bæjarsjóðs.

7. grein

Reglugerð þessi tekur gildi þegar bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur staðfest hana.

Samþykkt á ÍT fundi 14. október 2006.