Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks í Reykjanesbæ

Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks í Reykjanesbæ

Markmið akstursþjónustu fatlaðs fólks í Reykjanesbæ er að gera þeim sem búa við fötlun kleift að stunda vinnu, nám, tómstundir eða sækja sér þjónustu á sérhæfðar þjónustustofnanir í Reykjanesbæ Reglur þessar eru settar skv. 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum, og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Einnig er stuðst við leiðbeiningar félagsmálaráðuneytisins fyrir sveitarfélög um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.

1. Notendur þjónustunnar
Akstursþjónusta fatlaðs fólks er ætluð til afnota fyrir þá íbúa Reykjanesbæjar sem uppfylla það skilyrði að fötlun þeirra falli að skilgreiningu 2. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, og að þeir eigi ekki rétt á niðurgreiddri akstursþjónustu frá öðrum aðilum eða rétt á akstri samkvæmt öðrum lögum, reglugerðum eða reglum. Ferðaþjónustan er fyrst og fremst ætluð þeim sem sækja vinnu, þjálfun, tómstundir eða nám í Reykjanesbæ. Hámarks ferðafjöldi í mánuði eru 62. Ferðaþjónustan er almennt veitt innan tímaramma almenningssamgangna innanbæjar.

Hafi fatlaður einstaklingur átt rétt á að nota akstursþjónustu fatlaðs fólks fyrir 67 ára aldur á hann rétt á þeirri þjónustu eftir að 67 ára aldri er náð óski hann þess að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum í reglum þessum.

Umsækjandi skal uppfylla annað eða bæði eftirfarandi skilyrða:

  • a. Er varanlega hreyfi hamlaður og þarf að nota hjólastól eða önnur gönguhjálpartæki
  • b. Er ófær um að nota almenningssamgöngur vegna annarrar langvarandi fötlunar.

Akstursþjónusta er ekki veitt þegar um tímabundna hreyfihömlun er að ræða s.s. vegna beinbrota og liðskiptiaðgerða.

2. Umsóknir
Umsókn um akstursþjónustu fatlaðs fólks skal senda til félagsþjónustu í gegnum Mitt Reykjanes. Umsókn skal metin á grundvelli möguleika umsækjanda til að nýta sér þjónustu almenningsvagna og/eða aðra ferðamöguleika. Þó er heimilt að veita undanþágu frá framangreindu skilyrði vegna sérstakra aðstæðna s.s. færðar, tímabundinna veikinda eða bilunar á bifreið sem þeir hafa til umráða.

Með umsókn skulu fylgja öll nauðsynleg gögn s.s. læknisvottorð eða greining á fötlun. Gildistími samþykktrar umsóknar skal taka mið af þörfum hvers og eins. Ef um varanlega hreyfihömlun er að ræða er heimilt að samþykkja umsókn ótímabundið.

Ef um er að ræða verulegar breytingar á högum umsækjanda eftir að umsókn hefur verið samþykkt er heimilt að endurskoða gildistíma samþykkis fyrir akstursþjónustu.

Um samþykkta akstursþjónustu skal gera skriflegan samning milli þjónustunotenda og Reykjanesbæjar sem þjónustuveitenda og undirritað af báðum aðilum.

Þegar notandi akstursþjónustu fatlaðs fólks dvelur tímabundið utan þjónustusvæðis samkvæmt reglum þessum og óskar eftir akstursþjónustu þar sem hann er staddur, er heimilt að veita hana ef fyrirliggjandi er samþykkt viðkomandi sveitarfélags um akstursþjónustu. Þá skal einnig liggja fyrir samþykki dvalarsveitarfélags um veitingu þjónustunnar. Samþykkt skal vera tímabundin, að hámarki í þrjá mánuði.

Akstursþjónusta fyrir börn
Forsjáraðilar fatlaðra barna á grunn-og framhaldsskólaaldri sækja um akstur samkvæmt reglum þessum fyrir börn og ungmenni, í og úr skóla, fyrir nauðsynlega stoðþjónustu á skólatíma og vegna tómstunda. Allur akstur er skv. mati á stuðningsþörf og skilyrði fyrir þjónustunni að barnið geti ekki nýtt sér almenningssamgöngur.

Akstursþjónusta er veitt innan Reykjanesbæjar virka daga. Þurfi barn bílstól er það á ábyrgð forsjáraðila að útvega hann.

3. Upplýsingaöflun og samvinna
Aðstæður umsækjanda skulu kannaðar svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn berst. Sama á við ef upplýsingar um nauðsyn á akstursþjónustu berast með öðrum hætti. Meðferð umsóknar, öflun upplýsinga og ákvörðun skal fara fram í samvinnu og samráði við umsækjanda eftir því sem unnt er, forráðamenn hans eða persónulegan talsmann eða umboðsmann hans ef við á.

Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður velferðarsviðs Reykjanesbæjar bjóða umsækjanda ráðgjöf ef þörf er á og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kanna að eiga annars staðar. Þá skal starfsmaður velferðarsviðs Reykjanesbæjar einnig upplýsa umsækjanda um þær skyldur sem kunna að hvíla á umsækjanda vegna umsóknar um akstursþjónustu.

Persónulegur talsmaður skal leggja fram samkomulag við umsækjanda, sbr. ákvæði 1. mgr. 7. gr. laga nr. 88/2011 um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði.

Velferðarsvið Reykjanesbæjar skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun tekin.

4. Niðurstaða og rökstuðningur synjunar
Kynna skal niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi, forráðamaður eða talsmaður umsækjanda fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með vísan til viðeigandi ákvæða þessara reglna.

Þar skal jafnframt kynntur réttur hans til að fara fram á að ákvörðunin verði endurskoðuð á hjá áfrýjunarnefnd velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Beiðni um endurskoðun skal koma fram innan fjögurra vikna frá því að umsækjanda/forráðamanni/talsmanni barst vitneskja um ákvörðunina.

Ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarsviðs Reykjanesbæjar skal kynnt umsækjanda skriflega og honum jafnframt kynntur réttur hans til málskots til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. 5. gr. reglna þessara.

5. Málskot til úrskurðarnefndar velferðarmála
Umsækjandi getur skotið ákvörðun sveitarfélagsins til úrskurðarnefndar velferðarmála. Kærufrestur er þrír mánuðir frá því að tilkynning barst um ákvörðunina. Kæra telst fram komin innan kærufrests ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist úrskurðarnefndinni eða verið póstlögð áður en fresturinn er liðinn.

6. Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum
Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu skriflegu samþykki viðkomandi.

Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.

Ökumenn og aðrir starfsmenn akstursþjónustu fatlaðs fólks skulu skrifa undir yfirlýsingu um trúnað. Trúnaðarskylda helst þótt látið sé af starfi.

7. Þjónustutími
Þjónustutími er skilgreindur sem sami tími og í almenningssamgöngum innan Reykjanesbæjar, nema annað sé tekið fram.

8. Pantanir/afpantanir akstursþjónustu
Notkunarheimild fyrir akstursþjónustu skal senda til þess þjónustuaðila sem sinnir þjónustunni fyrir hönd Reykjanesbæjar.

Notendur setja sig í samband við þjónustuaðila með símtali eða tölvupósti og óska þar eftir ferðum.

Notendur skulu veita upplýsingar fyrir fram um fastar ferðir næstu vikur eða mánuði t.d. vegna vinnu eða skólagöngu til að þjónustuaðilar geti leitað hagræðis við skipulagningu ferða.

Tilhögun pantana, skráninga og afpantana skal nánar útfærð í þjónustulýsingu.

9. Tilhögun ferða
Ferð er skilgreind í reglum þessum sem akstur frá A til B innan þjónustusvæðisins. Akstursþjónustan byggist á samnýtingu ökutækja þannig að fleiri en einn notandi ferðast að jafnaði saman.

Notendur þurfa að vera tilbúnir til brottfarar í anddyri brottfararstaðar eða við hann 5 mínútum fyrir og þar til 10 mínútum eftir pantaðan/áætlaðan komutíma bíls.

Við sérstakar aðstæður skulu bílstjórar aðstoða notendur í og úr bifreið og frá og að anddyri sé þess þörf. Bílstjórar skulu aðstoða notendur með farangur sem nauðsynlegur er notendum, þó ekki lengra en í anddyri. Skal þá miðað við að notandi hafi ekki meiri farangur en hægt er að bera í einni ferð í eða úr bílnum.

Ekki er beðið á meðan notandi sinnir erindi sínu. Bílstjórum er ekki heimilt að sinna sendiferðum fyrir notendur.

Notanda sem ekið er til læknis er heimilt að hringja eftir akstri til baka að viðtali loknu, enda hafi það ekki verið vitað fyrir fram hve viðtalið tæki langan tíma.

Akstursþjónusta fatlaðs fólks er sérhæfð þjónusta og þurfa notendur því að vera viðbúnir töfum eða breytingum á áætlun, svo sem vegna færðar og umferðartafa á annatímum.

Tilhögun ferða skal nánar útfærð í þjónustulýsingu.

10. Gjald og þjónustusvæði
Fargjöld notenda fyrir akstursþjónustu taka mið af almenningssamgöngum og eru ákvörðuð í gjaldskrá á hverju ári. Þjónustusvæði akstursþjónustunnar er Reykjanesbær, nema fyrir liggi samþykkt um akstur til og frá skammtímavistun í Suðurnesjabæjar.

11. Málsmeðferð
Um málsmeðferð fer skv. XVI. og XVII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og stjórnsýslulögum nr. 37/1993.

12. Gildistaka
Reglur þessar kveða á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita og eru settar með stoð í 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum og III. kafla laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Reglur þessar öðlast gildi hinn 1.12.2023.