Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum á vef Reykjanesbæjar

1. gr.

Við birtingu á fundargerðum á vef Reykjanesbæjar skulu jafnframt gerð aðgengileg þau gögn sem varða viðkomandi mál og fylgdu fundarboði eða lögð voru fram á viðkomandi fundi.

2. gr.

Gæta skal þess að birta ekki gögn sem undanþegin eru samkvæmt upplýsingalögum nr. 140/2012.

Um getur verið að ræða:

  1. Gögn er varða tillögugerð eða viðræður við ríkið um fjárhagsleg málefni sveitarfélagsins.
  2. Gögn er tengjast dómsmáli eða athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað.
  3. Gögn um málefni starfsmanna.
  4. Vinnugögn vegna undirbúnings ákvarðana í málum.
  5. Gögn er varða einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga og lögaðila.
  6. Gögn er varða mikilvæga almannahagsmuni.

3. gr.

Heimilt er að veita ríkari aðgang að gögnum en mælt er fyrir í 2. gr. en ávallt skal þess gætt að birta ekki gögn sem falla undir lagareglur um þagnarskyldu og persónuvernd.

4. gr.

Ákvörðun um birtingu gagna með fundargerð skal vera á ábyrgð sviðsstjóra eða hafnarstjóra á fundargerðum frá ráðum og nefndum Reykjanesbæjar sem falla undir þeirra svið eða stofnun.

Ef álitamál er um birtingu gagna með fundargerð skal bæjarstjóri skera úr um hvort viðkomandi gögn séu undanþegin upplýsingalögum.

5. gr.

Í þeim tilvikum sem óskað er eftir gögnum er varða tiltekið mál sem ekki hafa verið lögð fram á fundi eða fylgt fundarboði skal beiðni um slík berast í gegnum mittreykjanes.is á notendasvæði beiðanda.

6. gr.

Reglur þessar eru settar með vísan til upplýsingalaga nr. 140/2012, stjórnsýslulaga nr. 37/1993, laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga.

Reglur voru samþykktar í bæjarráði 26. apríl 2019 og í bæjarstjórn 7. maí 2019.