Almenn atriði
1. gr. Markmið og inntak fjárhagsaðstoðar
Markmið fjárhagsaðstoðar hjá Reykjanesbæ er að styðja við einstaklinga og fjölskyldur til þess að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi þeirra og stuðla að velferð íbúa Reykjanesbæjar.
Við framkvæmd fjárhagsaðstoðar skal þess gætt að hvetja umsækjendur fjárhagsaðstoðar til virkrar þátttöku og valdeflingar í mótun þjónustu sem að þeim snýr og þeir studdir til sjálfshjálpar. Skal þess gætt að upplýsa umsækjendur um réttindi sín, en jafnframt þá ábyrgð sem á þeim hvílir gagnvart sjálfum sér og öðrum.
Gefa skal sérstakan gaum að fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum barnafjölskyldna og meta sérstaklega þarfir barna vegna þátttöku þeirra í þroskandi félags- og tómstundastarfi, í samræmi við 30. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sbr. og 11. gr. þessara reglna.
Þá skal við framkvæmd fjárhagsaðstoðar ávallt leggja sérstakt mat á það hvaða áhrif ákvörðun hefur á barn eða börn, eftir því sem við á, sbr. 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Jafnan skal kanna til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttafélaga, svo og skal kanna rétt til aðstoðar samkvæmt öðrum lögum.
Fjárhagsaðstoð er eingöngu ætluð til framfærslu en ekki til fjárfestinga eða greiðslu skulda.
Fjárhagsaðstoð skv. reglum þessum er alltaf tímabundið úrræði.
Fjárhagsaðstoð ber að skoða sem samvinnu Reykjanesbæjar og þess sem aðstoðarinnar nýtur, þar sem stuðningur til sjálfshjálpar er leiðarljósið.
Fjárhagsaðstoð skal veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði velferðarsviðs svo sem félagslega ráðgjöf og leiðbeiningar, tilboð um starf eða önnur virkniúrræði, í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Reykjanesbær veitir einnig sérstakan húsnæðisstuðning til fjölskyldna og einstaklinga sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá fyrir húsnæði sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrgðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Um sérstakan húsnæðisstuðning er fjallað í 26.–40. gr. reglna þessara.
Einstaklingur, sem alla jafnan ætti rétt á fjárhagsaðstoð, sem vegna vímuefnaneyslu telur sig eða er talin hafa þörf á meðferð, skal fá til þess fjárstuðning frá velferðarsviði m.v. eina meðferð á ári.
Heimilt er að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna, sbr. 16.–20. gr. í reglum þessum.
Fjárhagsaðstoð skal alla jafna greidd eftir á, síðast virka dag hvers mánaðar.
2. gr. Lagagrundvöllur
Sveitafélögum er skylt skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV., V. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum.
Með hliðsjón af því setur bæjarstjórn Reykjanesbæjar eftirfarandi reglur um fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ.
3. gr. Framfærsluskylda
Hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára, sbr. 1. mgr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Fólk sem er í skráðri sambúð í þjóðskrá á sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón. Sambúðin skal hafa verið skráð í þjóðskrá í a.m.k. eitt ár áður en umsókn er lögð fram, sbr. 2. mgr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
4. gr. Form fjárhagsaðstoðar
Fjárhagsaðstoð skal að jafnaði veitt sem styrkur.
Fjárhagsaðstoð er einungis veitt sem lán óski umsækjandi þess eða könnun á aðstæðum leiði í ljós að eðlilegt sé að gera kröfur um endurgreiðslur með tilliti til eigna og framtíðartekna, sbr. reglur þessar og sbr. 22. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Lán eru vaxtalaus.
5. gr. Réttur fylgir lögheimili
Umsækjendur um fjárhagsaðstoð skulu eiga lögheimili í Reykjanesbæ.
Þurfi fólk á skyndilegri aðstoð að halda í dvalarsveitarfélagi sökum slysa, veikinda eða af öðrum brýnum orsökum er dvalarsveitarfélagi skylt að veita tímabundna aðstoð. Skal um það haft samráð við lögheimilissveitafélag og aðstoð metin og veitt í samræmi við reglur þess.
Lögheimilissveitarfélag endurgreiðir dvalarsveitarfélagi kostnaðinn, sbr. 14. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
6. gr. Tímabil samþykktrar aðstoðar
Fjárhagsaðstoð skal að öllu jöfnu vera greidd einn mánuð í senn og skulu ákvarðanir um aðstoð að jafnaði ekki ná yfir lengra tímabil en þrjá mánuði.
Aðstæður þeirra sem fengið hafa fjárhagsaðstoð lengur en þrjá mánuði skulu kannaðar sérstaklega og félagsleg ráðgjöf veitt í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
Gera skal einstaklingsáætlun þar sem hafa skal samvinnu og samráð að leiðarljósi, sbr. 8. gr. og 58. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Í undantekningartilvikum er heimilt að veita fjárhagsaðstoð vikulega vegna sérstakra aðstæðna.
7. gr. Fjárhagsaðstoð aftur í tímann
Fjárhagsaðstoð er aldrei skylt að veita lengra aftur í tímann en fjóra mánuði frá því að umsókn er lögð fram, sbr. 3. mgr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Rökstuddar ástæður þurfa að liggja að baki ef aðstoð er veitt aftur í tímann og verður skilyrðum reglna þessara fyrir fjárhagsaðstoð að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um.
Umsókn um fjárhagsaðstoð
8. gr. Umsókn og fylgigögn
Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram hjá velferðarsviði Reykjanesbæjar. Í neyðartilvikum er heimilt að leggja umsókn fram í dvalarsveitarfélagi sbr. 5. gr. þessara reglna.
Umsókn skal skila rafrænt með þeim fylgigögnum sem óskað er eftir, þar með talið lögheimili, fjölskyldugerð, nafn maka eða sambýlismanns og barna á framfæri og nákvæmar upplýsingar um tekjur og eignir sbr. 9. gr. þessara reglna.
Með umsókn skal fylgja staðfest skattframtal vegna síðastliðins árs, sbr. 24. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, yfirlit yfir allar tekjur og aðrar greiðslur til umsækjanda og maka eða sambýlismanns þann mánuð sem umsókn er lögð fram og tvo mánuði þar á undan, þar með taldar greiðslur frá almannatryggingum, lífeyrissjóðum, Vinnumálastofnun, sjúkrasjóðum stéttafélaga o.s.frv.
Einnig ber að skila stöðuyfirliti um innistæður í bönkum, sparisjóðum eða öðrum fjármálastofnunum fyrsta dag mánaðar í umsóknarmánuði og fyrsta dag mánaðarins á undan.
Umsækjandi getur veitt öðrum skriflegt vottað umboð til að sækja um aðstoð fyrir sína hönd.
Þegar umsækjandi er án atvinnu skal hann framvísa vottorði frá Vinnumálastofnun er staðfestir atvinnuleysi hans, atvinnuleit og rétt til atvinnuleysisbóta. Njóti umsækjandi réttar til atvinnuleysisbóta skal hann framvísa greiðsluseðli.
Hafi umsækjandi ekki fengið atvinnuleysisbætur vegna veikinda skal hann framvísa læknisvottorði. Læknisvottorð skal að jafnaði ekki vera eldra en fjögurra vikna þegar það er lagt fram.
Hafi umsækjandi ekki skráð sig hjá Vinnumálastofnun, án viðhlítandi skýringa, hefur það áhrif á fjárhæð aðstoðar, sbr. 12. gr. þessara reglna.
Umsóknaraðili skal veita upplýsingar um skráningu í nám, enda eiga þeir sem sækja lánshæft nám ekki rétt á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga skv. 16. gr. þessara reglna.
Erlendum ríkisborgurum ríkis innan EES ber að framvísa staðfestingu á lögheimilisskráningu. Réttur til fjárhagsaðstoðar getur myndast í fyrsta lagi þremur mánuðum eftir skráningu lögheimilis.
Sé umsókn ófullnægjandi eða henni fylgja ekki nauðsynleg gögn skal umsækjandi gerð grein fyrir því sem ábótavant er og honum gefinn kostur á að bæta úr þeim annmörkum innan 14 daga frá tilkynningu.
Umsókn er ekki hægt að taka til umfjöllunar og afgreiðslu fyrr en öll nauðsynleg gögn liggja fyrir.
Heimilt er að synja umsókn um fjárhagsaðstoð ef umsækjandi neitar að veita upplýsingar um fjárhag sinn og/eða maka síns eða aðrar upplýsingar samkvæmt reglum þessum.
Fjárhagsaðstoð sem er veitt á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi þess sem aðstoðina fær, er ætíð endurkræf.