Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt að hvatagreiðslur fyrir foreldra barna 4 til 18 ára aldurs séu kr. 45.000 frá 1. janúar 2023 til niðurgreiðslu á viðurkenndu íþrótta-, tómstunda- og listgreinastarfi.
Skilyrði er að um skipulagt starf sé að ræða sem er stundað undir leiðsögn þjálfara eða kennara eða leiðbeinanda. Hafi viðkomandi ekki nýtt sér hvatagreiðslur að hluta eða að fullu falla eftirstöðvar niður um áramót.
Skilyrði er að bæði barn og foreldri eigi lögheimili í Reykjanesbæ. Athygli er vakin á því að barn getur einungis fengið hvatagreiðslur hjá því foreldri sem barnið er með lögheimili hjá ef um sameiginlega forsjá er að ræða.
Nánari upplýsingar veitir íþrótta- og tómstundafulltrúi