I. Almennt
1. gr.
Umboð barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar
Reglur þessar eru settar samkvæmt 3. mgr. 14. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Starfsmönnum barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar er falið umboð til könnunar, meðferðar og ákvarðanatöku í einstökum barnaverndarmálum eða málaflokkum samkvæmt þessum reglum og í samræmi við ákvæði barnaverndarlaga, að undanskildum þeim ákvörðunum sem óheimilt er samkvæmt barnaverndarlögum að framselja til starfsmanna.
Barnaverndarnefnd getur hvenær sem er gripið inn í aðgerðir starfsmanna og skulu þeir í störfum sínum framfylgja ákvörðunum nefndarinnar og fara að tilmælum hennar.
2. gr.
Starfsmenn barnaverndarnefndar
Starfsmenn barnaverndarnefndar skulu alla jafna hafa lokið háskólaprófi í félagsráðgjöf, sálfræði, uppeldisfræði, lögfræði eða öðrum þeim fræðum sem nýtast vel við vinnslu barnaverndarmála.
Starfsmenn verða að búa yfir hæfni og þekkingu til þess að veita foreldrum, stofnunum og öðrum er annast uppeldi viðhlítandi ráðgjöf, fræðslu og leiðbeiningar samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002.
Forstöðumanni barnaverndar er heimilt að fela utanaðkomandi sérfræðingum vinnslu mála eftir því sem rúmast innan fjárhagsáætlunar hverju sinni.
II. Vanhæfisreglur
3. gr.
Vanhæfi
Um starfsmenn barnaverndarnefndar gilda hæfisreglur II. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Starfsmaður barnaverndarnefndar er vanhæfur að vinna barnaverndarmál ef:
a. Hann er aðili að málinu.
b. Hann hefur verið talsmaður aðila varðandi málið.
c. Hann hefur borið um mál að öðru leyti en því sem leiðir af störfum hans á vegum nefndarinnar.
d. Hann er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar.
e. Hann tengist eða hefur tengst talsmanni aðila með sama hætti og segir í c-lið.
f. Hann tengist eða hefur tengst einhverjum sem borið hefur um málið með sama hætti og segir í c-lið.
g. Fyrir hendi eru önnur atvik eða aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa.
4. gr.
Áhrif vanhæfis
Starfsmaður sem veit um ástæður sem kunna að valda vanhæfi hans skal án tafar vekja athygli næsta yfirmanns á því. Yfirmaður tekur síðan endanlega ákvörðun um hvort starfsmaður víki sæti.
Sé yfirmaður vanhæfur til meðferðar máls gildir hið sama um starfsmenn sem undir hann heyra og skal mál þá unnið undir stjórn hans yfirmanns af þeim sem sá skipar til þess.
Sé starfsmaður vanhæfur til meðferðar máls má hann ekki taka þátt í undirbúningi, meðferð eða úrlausn þess. Honum er þó heimilt að gera þær ráðstafanir sem eru nauðsynlegar til að halda máli í réttu horfi meðan staðgengill er ekki til staðar samkvæmt 4. gr. stjórnsýslulaga. Hið sama gildir um yfirmann.
Ef mál er tengt einum eða fleiri starfsmönnum barnaverndarnefndar getur forstöðumaður í samráði við sviðsstjóra velferðarsviðs ákveðið að fela vinnslu þess annarri barnaverndarnefnd.
Nefndarmaður sem vanhæfur er til meðferðar máls skal yfirgefa fundarsal við afgreiðslu þess.
5. gr.
Samstarf milli barnaverndarnefnda
Ef starfsmenn telja hentugra að mál sé að einhverju eða öllu leyti rekið í öðru umdæmi en þar sem barn á fasta búsetu er þeim heimilt að semja við þá barnaverndarnefnd sem hentugra er talið að fari með málið um að málið sé rekið þar.
Slíkt samkomulag skal staðfest á meðferðarfundi eða móttöku- og greiningarfundi.
III. Málsmeðferð hjá starfsmönnum barnaverndarnefndar
6. gr.
Trúnaðarskylda
Starfsmönnum ber við störf sín að gæta fyllsta trúnaðar um hagi barna, foreldra og annarra sem þeir hafa afskipti af. Þeir mega ekki skýra óviðkomandi aðilum frá því sem þeir verða vísir að í störfum sínum um einkamál manna eða heimilishætti.
Trúnaðarskylda helst þótt starfsmaður láti af störfum.
7. gr.
Meginreglur í barnaverndarstarfi
Starfsmönnum ber að vanda störf sín og gæta faglegra vinnubragða eftir því sem best þykir á hverjum tíma. Starfsmenn skulu sýna börnum, foreldrum og öðrum sem tengjast barnaverndarmáli fyllstu nærgætni við könnun og meðferð mála ásamt því að leitast við að eiga góða samvinnu við þau.
Starfsmenn skulu í störfum sínum eiga góða samvinnu sín á milli, við aðrar deildir velferðarsviðs og aðrar stofnanir sem fjalla um málefni barna.
Starfsmenn skulu beita þeim ráðstöfunum sem ætla má að barni séu fyrir bestu. Hagsmunir barna skulu ávallt hafðir í fyrirrúmi. Aðrir hagsmunir, svo sem hagsmunir foreldra, verða að víkja stangist þeir á við hagsmuni barnsins.
Starfsmenn skulu í störfum sínum og öllum ákvörðunum gæta samræmis og jafnræðis.
Starfsmenn skulu eftir föngum gæta þess að almenn úrræði til stuðnings fjölskyldu séu reynd áður en gripið er til íþyngjandi úrræða. Jafnframt skal ávallt miða við að beitt sé vægustu úrræðum til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að. Aðeins skal gripið til íþyngjandi ráðstafana ef lögmætum markmiðum verður ekki náð með öðru eða vægara móti.
8. gr.
Réttindi barna við málsmeðferð
Í starfi sínu skulu starfsmenn taka tillit til sjónarmiða og óska barna eftir því sem aldur þeirra og þroski gefur tilefni til.
Þegar tekin hefur verið ákvörðun um að kanna mál skal taka afstöðu til þess hvort skipa skuli barni talsmann. Að jafnaði skal skipa barni talsmann áður en gripið er til ráðstafana samkvæmt 25., 27. eða 28. gr. barnaverndarlaga og áður en sett er fram krafa um sviptingu samkvæmt 29. gr. nema barn njóti aðstoðar lögmanns samkvæmt 2. mgr. 47. gr.
Ávallt skal leita samþykkis barna 15 ára og eldri og þeim skipaður talsmaður. Barn eldri en 15 ára telst aðili máls.
9. gr.
Málshraði
Starfsmenn skulu afgreiða mál svo fljótt sem auðið er og sjá til þess að mál séu nægilega upplýst áður en ákvarðanir eru teknar.
Ákvörðun um könnun máls skal að jafnaði tekin innan sjö daga frá því að tilkynning berst.
Könnun skal að jafnaði lokið innan þriggja mánaða frá því að tilkynning berst.