Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur um leikskólavist í Reykjanesbæ

1. Umsókn og skilyrði

  • Forráðamenn barna með lögheimili og fasta búsetu í Reykjanesbæ geta sótt um leikskólavist hvenær sem er eftir fæðingu barns.
  • Sótt er um á heimasíðu Reykjanesbæjar.
  • Í umsókn er sett fram ósk um þrjá leikskóla.
  • Tilgreina þarf dvalartíma barns.

2. Forgangur

  • Forgangur er veittur:
    • Börnum einstæðra foreldra
    • Börnum með fötlun og/eða veikindi
    • Börnum sem búa við félagslega erfiðleika
  • Eldri börn ganga fyrir yngri við úthlutun rýma.

3. Dvalartími

  • Boðið er upp á 4, 5, 6, 7 eða 8 tíma á dag.
  • Breytingar á dvalartíma fara fram í gegnum Völu leikskólakerfi.

4. Mæting og tilkynningar

  • Æskilegt er að börn mæti vel og stundvíslega í leikskólann.
  • Foreldrar skulu:
    • Virða dvalartíma
    • Skila barni í hendur starfsfólks og láta vita þegar það er sótt
    • Tilkynna fjarveru, t.d. vegna veikinda

5. Gjöld og greiðslur

  • Vistgjöld eru greidd fyrirfram, eindagi er 20. hvers mánaðar.
  • Dráttarvextir og innheimtukostnaður bætast við ef ekki er greitt á eindaga.
  • Vanskil geta leitt til uppsagnar leikskólapláss.
  • Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er 1 mánuður, miðað við 1. eða 15. dag mánaðar.
  • Foreldrar greiða fyrir dvöl þrátt fyrir fjarveru, en fæðisgjald fellur niður eftir 4 vikna samfellda fjarveru.


6. Breytingar á högum

  • Foreldrar skulu tilkynna breytingar á:
    • Heimilisfangi
    • Símanúmeri
    • Hjúskaparstöðu
  • Breytingar á vistgjöldum taka gildi 1. hvers mánaðar eftir að þær eru tilkynntar.

7. Lokunartímar

  • Leikskólinn er lokaður í 5 vikur í sumarleyfi.
  • Einnig er lokað á skipulagsdögum sem eru auglýstir með mánaðarfyrirvara.
  • Leikskólar Reykjanesbæjar eru lokaðir á:
    • Aðfangadag
    • Gamlársdag
    • Milli jóla og nýárs

8. Skráningardagar

  • Í vetrarfríum (febrúar, október) og dymbilviku fyrir páska eru skráningardagar fyrir þá sem þurfa vistun þessa daga.
  • Foreldrar fá upplýsingar um skráningardagana með mánaðarfyrirvara og er opið fyrir skráningu í eina viku.
  • Séu börn ekki skráð í leikskólann þessa daga er litið svo á að þau séu í leyfi og greiða foreldrar ekki fyrir umrædda daga.
  • Á þessum dögum eru opnir tveir leikskólar í sveitarfélaginu þar sem börnin safnast saman ásamt kennurum frá sínum leikskólum.

9. Öryggi og trúnaður

  • Öll börn í leikskólum Reykjanesbæjar eru slysatryggð.
  • Starfsfólk Reykjanesbæjar er bundið þagnarskyldu.

10. Endurskoðun

  • Reglurnar voru endurskoðaðar og uppfærðar í júní 2026.