1. gr.
Gatnagerðagjöld eru endurgreidd miðað við neysluvísitölu frá greiðsludegi til endurgreiðsludags sbr. 9. gr. laga nr. 153/2006.
2. gr.
Reykjanesbær endurgreiðir innan 30 daga ef lóðarskil eru samþykkt sbr. 9. gr. laga nr. 153/2006.
3. gr.
Staðfestingargjöld vegna lóða eru endurgreidd en eru ekki verðbætt eins og gatnagerðagjöld.
4. gr.
Byggingarleyfisgjöld eru ekki endurgreidd og eru tekin af heildar gatnagerðagjöldum ef ekki er búið að greiða.
5. gr.
Ef sami/sömu aðilar eiga ógreidd fasteignargjöld eða aðrar ógreiddar skuldir hjá Reykjanesbæ verða þær fyrst greiddar áður en kemur til endurgreiðslu gjalda.
6. gr.
Ef lóðarleigusamningur er ekki kominn á lóð en framkvæmdir hafnar, greiðir Reykjanesbær ekki fyrir þær framkvæmdir.
7. gr.
Ef lóðarleigusamningur er frágenginn verður ekki tekið við lóðum.
8. gr.
Ef veð eru komin á þinglýsta lóð verður ekki tekið við lóðinni.
9. gr.
Beiðni um undantekningu á ofangreindum reglum er tekin fyrir hjá sérstökum starfshópi á vegum Reykjanesbæjar (1 frá USK, 1 frá FJÁR og 1 frá FFR).
Greinargerð frá starfshópi er svo tekin fyrir hjá bæjarráði.
Öll þessi mál verða tekin fyrir sem trúnaðarmál.
Guðlaugur H. Sigurjónsson
sviðsstjóri Umhverfissviðs