Samþykktar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar 18.febrúar 2020
1. gr.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er heimilt að veita styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi æskulýðs- og mannúðarsamtaka sem ekki er rekin í ágóðaskyni, sbr. heimild í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
2. gr.
Rétt til styrks eiga félög og félagasamtök sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) reka starfsemi sína í eigin húsnæði eða leiguhúsnæði í Reykjanesbæ og eru með lögheimili í Reykjanesbæ
b) starfsemin skal vera menningar-, íþrótta-, tómstundastarfsemi og mannúðar sem er rekin í almannaþágu eða þágu æskulýðs
c) um mannúðarsamtök gildir að góðgerðarstarfsemi verður að meginstefnu að vera unnin í sjálfboðavinnu félagsmanna og ná út fyrir raðir þeirra s.s. formi styrkja, gjafa eða stuðnings fyrir almannaheill og samfélagið
d) starfsemin má ekki vera rekin í ágóðaskyni en heimilt er að innheimta tímabundnar tekjur fyrir notkun húsnæðisins ef þær tekjur eru eingöngu nýttar til reksturs húsnæðisins, sbr. 3. gr. reglna þessara.
3. gr.
Styrkur til greiðslu fasteignaskatts skal nema álögðum fasteignaskatti.
Nú eru fasteignir þær sem um ræðir í 1. og 2. gr jafnframt notaðar til annars en að framan greinir, svo sem til veitinga- eða verslunarreksturs eða til íbúðar fyrir aðra en húsverði, skal þá leggja á og innheimta fasteignaskatt í réttu hlutfalli við slík afnot.
Sé húsnæðið leigt út ótímabundið eða hluti þess í fastri útleigu skal styrkveiting takmarkast hlutfallslega sem því svarar. Ef um fleiri en einn eiganda er að ræða að eign, sem ekki uppfylla skilyrði reglna þessara, er veittur styrkur til þeirra sem uppfylla skilyrði reglnanna, í samræmi við eignarhluta þeirra.
Styrkur til greiðslu fasteignaskatts af lóð skal reiknast í sama hlutfalli og af húsnæði.
4. gr.
Bæjarráði er heimilt að fela fjármálastjóra fullnaðarafgreiðslu mála skv. reglum þessum ef þau varða ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun hvers árs.
Heimilt er að vísa álitamálum um túlkun þessara reglna til bæjarráðs.
5. gr.
Auglýst skal í janúar ár hvert eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteignaskatts.
Við það skal miðað að frestur til að skila inn umsóknum sé einn mánuður og að úthlutun og greiðslu styrks sé lokið mánuði eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
Umsóknir samtaka sem reka starfsemi sína í leiguhúsnæði skulu unnar í samvinnu við þinglýstan eiganda fasteignarinnar og skulu þær undirritaðar af forsvarsmönnum beggja aðila.
Verði fallist á umsókn skal styrkur renna til eiganda fasteignarinnar sem ábyrgist að styrkurinn skili sér óskertur í lægri húsaleigu viðkomandi samtaka.
Með umsókn um styrk skal fylgja ársreikningur síðast liðins rekstrarárs, lög félagsins þar sem fram koma markmið þess og stutt greinagerð um starfsemina.
Meginreglan skal vera sú að þær umsóknir einar séu gildar sem berast innan tilsetts umsóknarfrests og uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í auglýsingu.
Sætti aðili sig ekki við afgreiðslu á umsókn getur hann óskað eftir endurupptöku máls skv. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
6. gr.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar endurskoðar reglur þessar í desember ár hvert ef þurfa þykir.