Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur um umhverfisviðurkenningar Reykjanesbæjar

1. gr.

Umhverfisviðurkenningar Reykjanesbæjar eru veittar annars vegar einstaklingum og hins vegar fyrirtækjum sem viðurkenning fyrir fallega garða og vel hirtar lóðir og umhverfi. Með viðurkenningum vill Reykjanesbær hvetja bæjarbúa til að hugsa vel um nærumhverfi sitt og verðlauna þá sem skara fram úr í snyrtimennsku og umhirðu garða sinna.

2. gr.

Umhverfis- og skipulagsráð fer með framkvæmd verðlaunanna í samvinnu við starfsmenn Reykjanesbæjar. Auglýst er eftir tilnefningum á vefsíðu bæjarins og er unnið úr þeim nafnlaust. Verðlaunin eru afhent árlega.

3. gr.

Auglýst skal eftir tilnefningum í byrjun júní. Ráðið vinnur úr þeim og skoðar garða á fundi sínum í ágúst. Umhverfisviðurkenningar eru afhentar við hátíðlega athöfn á Ljósanótt.

4. gr.

Verðlaunaafhendingin er öllum opin og skal tímasetning hennar auglýst skilmerkilega á vefsíðu bæjarins. Bæjarfulltrúum, bæjarstjóra og garðanefndum er boðið formlega á afhendinguna ásamt verðlaunahöfum. Formaður ráðsins stýrir athöfninni og veitir umhverfisviðurkenningar.

5. gr.

Fimm viðurkenningar eru veittar í hvert sinn. Tvær eru bundnar við einkagarða, annars vegar snyrtilegan garð og hins vegar viðhald á eldra húsi, ein við fyrirtæki, ein við samfélagslegt verkefni og ein taki mið af þeim tilnefningum sem berast hverju sinni.

6. gr.

Allir garðar og öll fyrirtæki í Reykjanesbæ koma til greina sem verðlaunahafar umhverfisviðurkenninga. Að jafnaði skulu þó líða 5 ár á milli þess sem sami garður eða fyrirtæki getur fengið viðurkenningu að nýju.

Samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 9. júlí 2024.

Staðfest í bæjarstjórn 20. ágúst 2024.