Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar

Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar samkvæmt 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002

1. grein

Barnaverndarnefnd Reykjanesbæjar veitir foreldrum eða öðrum forsjáraðilum barns og barni 15 ára eða eldra sem er aðili máls fjárstyrk til greiðslu lögmannsaðstoðar vegna málsmeðferðar fyrir nefndinni áður en barnaverndarnefnd kveður upp úrskurð sbr. 1. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Veittur er fjárstyrkur vegna fyrirtöku á fundi barnaverndarnefndar, þ.e. vinnuframlag til undirbúnings og mætingar á fundi nefndarinnar þegar til greina kemur að beita þvingunarúrræðum samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002.

Ekki er veittur styrkur vegna viðveru lögmanns á fundum með starfsmönnum nefndarinnar nema sérstaklega hafi verið óskað eftir viðveru lögmanns af hálfu starfsmanns.

2. grein

Barnaverndarnefnd Reykjanesbæjar veitir jafnframt foreldrum eða öðrum forsjáraðilum barns og barni 15 ára eða eldra, sem er aðili máls, fjárstyrk til greiðslu lögmannskostnaðar fyrir kærunefnd barnaverndarmála, sbr. 2. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

3. grein

Fjárstyrkur til að greiða fyrir lögmannsaðstoð er háður því skilyrði að löglærður aðstoðarmaður hafi leyfi til að vera hæstaréttarlögmaður eða héraðsdómslögmaður sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn.

4. grein

Foreldrar eða aðrir forsjáraðilar barns og barn 15 ára eða eldra sem er aðili að máli velja sér sjálfir lögmenn, sbr. 1. mgr. 46. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

5. grein

Forstöðumaður barnaverndar Reykjanesbæjar afgreiðir umsóknir um fjárstyrk til greiðslu lögmannsaðstoðar skv. 2. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Umsóknin um fjárstyrk vegna lögmannsaðstoðar skal vera skrifleg og undirrituð.

Tímaskýrsla lögmanns skal fylgja með umsókninni.

6. grein

Fjárhæð styrkjar skal metin með hliðsjón af eðli og umfang málsins.

Taka skal tillit til efnahags umsækjanda þegar ákvörðun um fjárstyrk er tekin.

Greiðsla fyrir lögmannskostnað skv. reglum þessum skal miðast við tímagjald eins og það er ákveðið af Dómstólaráði eða kr. 16.500,-, að hámarki 20 tímar.

Í þeim tilvikum sem lögmaður er búsettur utan Suðurnesja er heimilt að greiða akstur skv. km.gjaldi, eins og það er hjá ferðanefnd ríkisins hverju sinni, fyrir hverja ferð fram og til baka, þó að hámarki 100 km.

Ekki er greitt tímagjald á þeim tíma sem ekið er.

Til viðbótar getur komið vinna í allt að 10 tíma ef máli er vísað til kærunefndar barnaverndarmála.

Sé mál það umfangsmikið að útlit sé fyrir að hámarks tímafjöldi sé ekki nægur, skal lögmaður gera skriflega grein fyrir því.

Viðbótartímar eru ekki greiddir nema samþykki forstöðumanns barnaverndar liggi fyrir því.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi sæki um gjafsókn ef mál fer fyrir dómstóla.

7. grein

Ákvörðun um fjárhæð styrkjar er kæranleg til kærunefndar barnaverndarmála, sbr. 6. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

8. grein

Reglur þessar skulu kynntar aðilum máls ef málefni þeirra sæta meðferð Barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar og þeim lögmönnum sem taka að sér að aðstoða þá, sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.