Reykjanesbær er ungt, kraftmikið og ört vaxandi samfélag þar sem tækifærin til atvinnuuppbyggingar eru fjölmörg. Hér fara saman einstök staðsetning, öflugur mannauður, gott framboð af atvinnulóðum og metnaður til að skapa fyrirtækjum framúrskarandi skilyrði til vaxtar og uppbyggingar.
Einn helsti styrkleiki Reykjanesbæjar er staðsetningin en hér er að finna alþjóðaflugvöll, stórskipahöfn í Helguvík og öflugar samgöngutengingar við höfuðborgarsvæðið og umheiminn. Þessi einstaka staða skapar fjölbreytt tækifæri fyrir fyrirtæki á sviði iðnaðar, flutninga, vörudreifingar, þjónustu og alþjóðlegrar starfsemi.
Í Reykjanesbæ er einnig hagkvæmt að byggja upp, lögð er áhersla á nægt lóðaframboð, skilvirkt skipulag og hóflegar álögur. Markmið sveitarfélagsins er í hvívetna að ryðja hindrunum úr vegi og gera fyrirtækjum auðveldara að vaxa og skapa ný störf.
Við viljum taka vel á móti einstaklingum og fyrirtækjum með stórar hugmyndir, veita góða þjónustu og greiða götu þeirra sem vilja hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Í Reykjanesbæ er samfélagið með þér í liði enda lítum við á atvinnuuppbyggingu sem sameiginlegt hagsmunamál fyrirtækja og samfélagsins alls.
Reykjanesbær býður alla velkomna í bæ tækifæranna.