Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Barnvænt sveitarfélag

Reykjanesbær hlaut viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag í janúar 2025 eftir innleiðingarferli sem hófst árið 2020. Innleiðingarferlið er hringrás en ekki átaksverkefni og felur hver hringrás í sér átta skref. Viðurkenningin er því ekki endapuntuktur þó að hver viðurkenning gildir í þrjú ár. Setja þarf ný markmið, framkvæma nýtt stöðumat og fara aftur í gegnum innleiðingarferlið.

Markmið Barnvæns sveitarfélags er að tryggja að réttindi barna séu höfð að leiðarljósi í allri ákvarðanatöku sem varðar börn og ungmenni. Þar er meðal annars lögð áhersla á jafnræði barna, þátttöku þeirra í ákvörðunum sem þau varða og að það sem er barninu fyrir bestu sé haft í forgangi. Barnasáttmálinn er nýttur sem gæðastjórnunarverkfæri í stefnumótun og þjónustu með tilliti til barna.

Tenglar

Tenglar á efni um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

Hér fyrir neðan eru tenglar á efni um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, innleiðingarferlið og aðgerðaáætlun Reykjanesbæjar.