Beint í efni

Aðventusvellið opnar með fjölskyldufjöri í Skrúðgarðinum

Opnun Aðventusvellsins 13. nóvember

Aðventusvellið í Skrúðgarðinum í Keflavík er skemmtilegur áfangastaður fyrir alla fjölskylduna í aðdraganda jóla. Þar geta börn og fullorðnir skellt sér á skauta, notið jólaljósanna og átt saman notalega stund í hjarta bæjarins.

Á opnunarhátíðinni, 13. nóvember, verður boðið upp á tónlist, fallega jólalýsingu og ýmislegt skemmtilegt fyrir börnin. Hoppukastali og leiktæki verða á svæðinu ef veður leyfir og hægt verður að kaupa sér veitingar, meðal annars heitt kakó, kaffi og kleinuhringi frá Dons Donuts.

Nýir rekstraraðilar taka við Aðventusvellinu í ár og bjóða íbúa og gesti velkomna á svellið í aðdraganda jóla.

Miðaverð á svellið er 1.490 kr. og mælt er með að bóka skautatíma fyrirfram á www.adventusvellid.is, þar sem að hámarki 40 gestir geta verið á svellinu í einu.

Aðventugarðurinn opnar 5. desember

Opnun Aðventusvellsins markar upphafið að jólalegri stemningu í Skrúðgarðinum en Aðventugarðurinn sjálfur opnar laugardaginn 5. desember. Þar verður að venju boðið upp á notalega aðventustemningu, sölukofa og fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Það er því full ástæða til að bregða sér í Skrúðgarðinn, reima á sig skautana og byrja að hlakka til jólanna!