Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Alþjóðadagur kennara

Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur 5. október ár hvert. Dagurinn er tileinkaður mikilvægu framlagi kennara til menntunar og samfélagsins og vekur jafnframt athygli á stöðu kennarastéttarinnar og þeim stuðningi sem kennarar þurfa til að sinna starfi sínu.

Alþjóðadagur kennara hefur verið haldinn frá árinu 1994 að frumkvæði UNESCO og Alþjóðasamtaka kennara (Education International). Dagsetningin vísar til samþykktar tilmæla ILO og UNESCO frá 1966 um stöðu kennara, þar sem sett voru alþjóðleg viðmið um réttindi og skyldur kennara, menntun þeirra, ráðningar og starfsaðstæður.

Að deginum standa UNESCO, Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO), UNICEF og Alþjóðasamtök kennara. Markmiðið er að heiðra kennara, undirstrika mikilvægi kennarastarfsins og beina sjónum að því hvernig efla megi menntun til framtíðar.

60 ár frá samþykkt alþjóðlegra tilmæla um stöðu kennara

Árið 2026 eru 60 ár liðin frá samþykkt tilmæla ILO og UNESCO um stöðu kennara. Á þeim tíma hafa störf kennara tekið miklum breytingum og nýjar áskoranir komið fram, meðal annars vegna stafrænnar þróunar, loftslagsbreytinga, inngildingar og fólksflutninga. Áhersla dagsins í ár er því á að vernda og efla faglega og samfélagslega stöðu kennara.

Yfirskrift dagsins er „Stöndum með kennurum: Í 60 ár höfum við staðið vörð um kennarastarfið, eflt stöðu þess og mótað framtíðina saman“.

Reykjanesbær óskar kennurum á öllum skólastigum innilega til hamingju með daginn og þakkar þeim fyrir faglegt og ómetanlegt framlag til barna, ungmenna og samfélagsins alls.