Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Breyting á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar

Áform eru um uppbyggingu í miðbæ Keflavíkur á svæði sem tilheyrir miðsvæði M2Miðbærinn í Reykjanesbæ. Tilgangurinn með aðalskipulagsbreytingunni er annars vegar að gefa kost á fleiri íbúðum innan miðsvæðis M2 en gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir og einnig á frekari uppbyggingu atvinnuhúsnæðis. Breytingin er unnin í tengslum við nýtt deiliskipulag þar sem fyrirhuguð er uppbygging með íbúðum og verslunar og þjónusturými.

Tillagan er aðgengileg á heimasíðu Reykjanesbæjar og í Skipulagsgátt HMS. Nánari fyrirspurnum er svarað í netfangi skipulag@reykjanesbaer.is Umsagnir eða athugasemdir skulu vera skriflegar og berast í Skipulagsgátt mál nr. 377/2026. Athugasemdafrestur er til og með 6. október 2026.

Reykjanesbæ, 13. ágúst 2026

Skipulagsfulltrúi