Beint í efni

Davíð Örn Óskarsson hlaut Súluna 2026

Davíð Örn Óskarsson hlaut Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar, við hátíðlega athöfn í Frumleikhúsinu laugardaginn 21. nóvember. Verðlaunin voru nú afhent í þrítugasta sinn. 

Davíð hlaut viðurkenninguna fyrir fjölbreytt og ómetanlegt framlag sitt til lista- og menningarlífs í Reykjanesbæ í nær þrjá áratugi. Hann hefur komið víða við sem leikari, leikmyndahönnuður, grafískur hönnuður, ljósmyndari og myndbandsgerðarmaður og lagt krafta sína í fjölda menningarverkefna. 

Davíð hefur um árabil verið öflugur þátttakandi í starfi Leikfélags Keflavíkur, ekki síst á bak við tjöldin. Hann kom auk þess að hátíðarsýningunum Með blik í auga á Ljósanótt, er einn af þeim sem standa að Keflavíkurannálnum á þorrablóti Keflavíkur og átt stóran þátt í að skapa ásýnd barna- og ungmennahátíðarinnar BAUN, allt frá nafni hátíðarinnar til hönnunar kynningarefnis. 

Við afhendinguna þakkaði Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Davíð fyrir framlag hans til menningarlífs bæjarins og lagði meðal annars áherslu á mikilvægi þeirra sem leggja tíma sinn, hæfileika og sköpunargáfu í þágu samfélagsins. 

„Sköpunarkraftur þinn, hugmyndaauðgi og fjölhæfni hafa sett mark sitt á menningarlíf Reykjanesbæjar um árabil og gert það bæði litríkara og skemmtilegra. Og vonandi fáum við að njóta krafta þinna um ókomin ár!“ sagði bæjarstjóri meðal annars í ávarpi sínu. 

Jóel Sæm kom gestum á óvart með skemmtilegum atriðum þar sem hann fór á sinn hátt yfir feril verðlaunahafans.  

Súlan er silfurskúlptúr eftir listakonuna Elísabetu Ásberg og vísar til sjófuglsins súlunnar í merki Reykjanesbæjar. Menningarverðlaunin eru árlega veitt einstaklingum eða hópum sem hafa með störfum sínum auðgað menningarlíf sveitarfélagsins. 

Reykjanesbær óskar Davíð Erni innilega til hamingju með Súluna 2026 og þakkar honum fyrir einstakt framlag til menningarlífs bæjarins.