Menningarverðlaun Reykjanesbæjar verða afhent í Frumleikhúsinu laugardaginn 21. nóvember kl. 16 og eru allir velkomnir að samfagna með verðlaunahafanum.
Súlan, menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2026, kemur að þessu sinni í hlut Davíðs Arnar Óskarssonar fyrir fjölbreytt og mikilvægt framlag hans til menningar- og listalífs í Reykjanesbæ.
Davíð hefur um árabil verið öflugur þátttakandi í menningarlífi bæjarins og komið að fjölmörgum verkefnum á sviði lista og menningar. Hann hefur meðal annars látið að sér kveða í leiklistarstarfi, leikmynda- og sviðshönnun, grafískri hönnun og myndbandagerð. Sköpunarkraftur hans, hugmyndaauðgi og fjölhæfni hafa sett mark sitt á fjölbreytt menningarverkefni og viðburði í samfélaginu.
Með viðurkenningunni vill bæjarstjórn Reykjanesbæjar þakka Davíð fyrir ómetanlegt framlag hans til menningarlífs bæjarins. Súlan er veitt þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til að auðga mannlíf og menningu samfélagsins með fjölbreyttum hætti. Það er íþrótta-, tómstunda- og menningarráð Reykjanesbæjar sem tekur ákvörðun um hver skuli hljóta viðurkenninguna, að undangenginni auglýsingu þar sem óskað er eftir tilnefningum frá íbúum.
Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna Elísabetu Ásberg og vísar til sjófuglsins súlunnar í merki Reykjanesbæjar, sem táknar lifandi samfélag. Þetta er í þrítugasta sinn sem menningarverðlaunin eru afhent.
Lífleg afhending í Frumleikhúsinu
Verðlaunin verða afhent við skemmtilega og líflega athöfn í anda Davíðs í Frumleikhúsinu laugardaginn 21. nóvember. Húsið opnar kl. 15:30 og verður gestum boðið upp á léttar veitingar við ljúfa tóna.
Dagskráin hefst kl. 16 og mun bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Vilhjálmur Árnason, afhenda Davíð Súluna.
Athöfnin er öllum opin og eru íbúar og aðrir velkomnir að mæta og fagna með Davíð Erni þessum ánægjulega áfanga.
