Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Endurnýjun trjágróðurs á Ásbrú

Næstu vikur stendur til að ráðast í fellingar á runna og trjágróðri  á Ásbrú.

Hér er um að ræða  gamlan víði sem er úr sér sprottinn og er við að enda sína lífdaga.  Víðir af þessu tagi er þannig gerður að hann má fella 20-30cm frá jörðu án þess að hann drepist, heldur getur hann endurnýjað sig og nýir stofnar vaxið upp frá rótarkerfi hans.  Þær framkvæmdir sem eru fyrirhugaðar geta  í fljótu bragði virst stórtækar og viðbúið að einhverjum bregði í brún þegar gróðurinn hverfur, en þær eru þó liður í því að byggja upp grænni og gróðursælli Ásbrú.

Fellingunum verður fylgt eftir með áburðargjöf að vori og  reglulegum snyrtingum komandi ár.