Beint í efni

Fjörheimar í ungmennaskiptum í Finnlandi og Írlandi

Ungmenni úr Fjörheimum hafa á undanförnum mánuðum tekið þátt í Erasmus+ ungmennaskiptum með ungmennum frá Finnlandi og Írlandi. Þátttakendur voru valdir úr hópi þeirra sem höfðu mætt reglulega og tekið virkan þátt í starfi Fjörheima. Hópurinn ferðaðist til Finnlands í ágúst og er nú nýkominn heim frá Dublin á Írlandi, þar sem þátttakendur hittust á ný og héldu áfram að styrkja vináttuna.

Erasmus+ er styrkjaáætlun Evrópusambandsins á sviði menntunar, æskulýðsmála og íþrótta. Ungmennaskipti gefa ungu fólki frá ólíkum löndum tækifæri til að hittast, vinna saman og læra hvert af öðru. Markmið verkefnisins er að efla samskipti, samvinnu og sjálfstraust ungmennanna og auka skilning þeirra á ólíkri menningu.

Í Finnlandi dvaldi hópurinn í ungmennamiðstöðinni Marttinen, þar sem útivera, hópefli og samvinna voru í fyrirrúmi. Ungmennin tóku þátt í fjölbreyttum þrautum og vinnustofum, kynntust finnskri náttúru og deildu hefðum og menningu heimalanda sinna.

Í Dublin tók félagsmiðstöðin Bradóg á móti hópnum með fjölbreyttri dagskrá. Þar unnu ungmennin meðal annars með hugmyndir um draumafélagsmiðstöðina og samfélagið sitt, tóku þátt í ratleik um borgina og kynntust írskum hrekkjavökuhefðum. Þau sáu einnig sjálf um hluta dagskrárinnar og kynnti íslenski hópurinn meðal annars jólasveinana þrettán og bauð hinum þátttakendunum að spreyta sig á íslenskum orðum.

Í báðum ferðum hafa ungmennin sýnt frumkvæði, æft sig í að tala ensku og tekist á við nýjar áskoranir með stuðningi hvert frá öðru. Sterk vináttubönd hafa myndast þvert á landamæri og hópurinn snýr heim með dýrmæta reynslu og margar góðar minningar.

Næsta vor verður komið að Fjörheimum að taka á móti finnsku og írsku vinunum á Íslandi. Þá fær íslenski hópurinn að vera í hlutverki gestgjafa, kynna heimahagana og halda áfram þessu skemmtilega samstarfi.