Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Frábært sumar hjá Vinnuskóla Reykjanesbæjar

Sumarið 2026 gekk afar vel hjá Vinnuskóla Reykjanesbæjar. Alls bárust 756 umsóknir frá ungmennum í 8.–10. bekk sem samsvarar 83,9% ungmenna í þessum árgöngum í Reykjanesbæ. Í sumar voru jafnframt ráðin til starfa 17 ára ungmenni en sá hópur sýndi mikinn metnað og dugnað í starfi.

Í sumar var aukin áhersla lögð á fræðslu fyrir ungmennin með það að markmiði að efla færni þeirra í samskiptum, fjármálalæsi og forvörnum. Fræðslurnar gengu vel fyrir sig og var almenn ánægja með aukna áherslu á þennan þátt starfsins.

Vinnuskólinn er umfangsmikið og mikilvægt forvarnarverkefni þar sem ungmenni fá tækifæri til að öðlast starfsreynslu, læra að axla ábyrgð og efla samskiptafærni sína. Áfram var lögð rík áhersla á að Vinnuskólinn væri uppbyggilegur vettvangur fyrir ungmenni þar sem þau fá tækifæri til að kynnast vinnumarkaðnum og öðlast dýrmæta reynslu.

Vinnuskólinn þakkar ungmennum, starfsfólki, foreldrum og samstarfsaðilum fyrir frábært sumar og hlakkar til að byggja áfram á þeim góða grunni sem lagður hefur verið.