Árlegur fræðsludagur dagforeldra á Suðurnesjum fór fram nýverið með góðri þátttöku dagforeldra af svæðinu. Þátttakendur voru dagforeldrar í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum.
Markmið dagsins var að efla fagþekkingu og styðja við mikilvægt starf dagforeldra við umönnun og uppeldi yngstu barna samfélagsins. Að skipulagningu dagsins komu leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar, sviðsstjóri mennta- og tómstundasviðs Suðurnesjabæjar ásamt menntasviði Reykjanesbæjar.
Á dagskránni voru fjölbreytt og fræðandi erindi. Fulltrúi frá Brunavörnum Suðurnesja fjallaði um brunavarnir og öryggismál í daglegu starfi með börnum. Þar var lögð áhersla á forvarnir, viðbrögð við hættuástandi og mikilvægi þess að tryggja öruggt umhverfi fyrir börn í daggæslu.
Jafnframt fluttu sérfræðingar frá BOFS erindi um farsæld barna og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar og samvinnu þeirra sem koma að lífi og velferð barna.
Einnig var boðið upp á fræðslu um tengsl, tjáningarform og taugaþroska ungra barna. Þar var farið yfir hvernig fyrstu samskipti og tengslamyndun hafa áhrif á þroska barna, hvernig börn tjá þarfir sínar og tilfinningar á mismunandi hátt og hvernig þekking á taugaþroska getur stutt við uppeldi og umönnun.
Fræðsludagurinn er mikilvægur vettvangur fyrir dagforeldra til að efla þekkingu sína og styrkja faglegt starf í þágu yngstu barna á Suðurnesjum. Slíkir dagar eru mikilvægur þáttur í að efla gæði þjónustu við yngstu íbúa Suðurnesja og styðja við faglega þróun þeirra sem sinna þessu mikilvæga hlutverki.


