Glæsilegur árangur náðist á góðgerðarfest Blue Car Rental þann 10. október síðastliðinn, þar sem 39 milljónir króna söfnuðust til stuðnings góðgerðarmálum og samfélagsverkefnum.
Markmið verkefnisins er að styðja við einstaklinga, félagasamtök og verkefni sem skapa jákvæð og raunveruleg áhrif á líf fólks, með sérstakri áherslu á nærsamfélagið á Suðurnesjum.
Við úthlutun styrkja var meðal annars lögð áhersla á verkefni sem styðja börn og fullorðna með auknar stuðningsþarfir, bæta aðstöðu til náms og þroska, efla félagslega þátttöku og styðja við fjölskyldur og einstaklinga sem standa frammi fyrir áskorunum.
Eftirfarandi verkefni og úrræði í Reykjanesbæ njóta stuðnings:
- Styrktarsjóður Hæfingarstöðvar
- Viðja, sérhæft námsúrræði í Myllubakkaskóla
- Sérhæft námsúrræði í Stapaskóla
- Ösp, sérhæft námsúrræði í Njarðvíkurskóla
- Meistaravellir, sérúrræði í Heiðarskóla
- Eikin, sérúrræði í Holtaskóla
- Sérúrræði í Háaleitisskóla
- Sérúrræði í Akurskóla
- Hlýjan
- Félagsstarf fyrir eldra fólk í þjónustumiðstöðinni á Nesvöllum
- Björk við Njarðvíkurskóla
Reykjanesbær óskar öllum sem komu að verkefninu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og þakkar fyrir mikilvægt framlag til samfélagsins.


