Það er sannarlega ánægjulegt að segja frá fjölbreyttu og öflugu starfi í Reykjanesbæ þar sem ungmenni láta ljós sitt skína, sýna frumkvæði og ná frábærum árangri á ólíkum sviðum.
Málæði – sköpun, tónlist og samvinna í 8. bekk Stapaskóla
Nemendur í 8. bekk Stapaskóla tóku þátt í verkefninu Málæði þar sem íslensk tunga var nýtt á skapandi hátt í gegnum tónlist. Allir nemendur fengu tækifæri til að semja, skapa og vinna með tónlist og var afrakstur vinnunnar sendur inn í verkefnið.
Lagið „Allt í gang“, sem þær Heiða Lind, Tinna Rut, Elsa Lind, Anna Lísa og María Dís sömdu, varð fyrir valinu.
Í framhaldinu komu starfsfólk Málæðis og tónlistarkonurnar Salka Sól og Ragga Holm í heimsókn í Stapaskóla þar sem unnið var áfram með lagið í samstarfi við hóp nemenda úr bekknum. Sú vinna skilaði sér meðal annars í tónlistarmyndbandi sem var frumsýnt í þætti um verkefnið á RÚV um helgina. Lagið mun einnig koma á Spotify og við hvetjum við öll til að hlusta.
Keflvíkingar Íslandsmeistarar í taekwondo
Um helgina fór Íslandsmótið í taekwondo fram og stóðu Keflvíkingar sig með glæsibrag. Þeir vörðu Íslandsmeistaratitil liða og hafa nú orðið Íslandsmeistarar liða alls 16 sinnum!
Eftirtalin urðu Íslandsmeistarar einstaklinga:
- Magnús Máni Guðmundsson
- Amir Maron Ninir
- Viktor Berg Stefánsson
- Nawar Abo Assaf
- Ahmad Batal
- Helgi Rafn Guðmundsson
- Vignir Nói Helgason
- Heiða Dís Helgadóttir
Heiða Dís Helgadóttir fékk jafnframt þann glæsilega heiður að vera valin besti kvenkeppandi mótsins.
Glæsilegur árangur hjá Fat Cats úr Holtaskóla
Nemendur í liðinu Fat Cats úr Holtaskóla í Reykjanesbæ náðu frábærum árangri í stóru LEGO keppninni og hlutu eftirfarandi viðurkenningar:
- 2. sæti í vélmennakappleik
- 2. sæti fyrir bestu hönnun og forritun vélmennis
- Jafningjaverðlaun
Reykjanesbær er stoltur af því öfluga og fjölbreytta starfi sem fram fer í bænum og þeim frábæra árangri sem ungmenni okkar ná á ólíkum sviðum. Það er dýrmætt að sjá sköpunargleði, metnað, samvinnu og hæfileika fá að njóta sín.




