Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Góð þáttaka á Tungumálakaffinu

ungumálakaffið Viltu kaffi? Tölum íslensku saman lauk nýverið fyrstu viðburðaröð sinni nú í lok maí. Viðburðirnir voru haldnir tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og laugardögum kl.11:00 til 12:30 á Bókasafni Reykjanesbæjar í Hljómahöll. Tungumálakaffið er nú komið í sumarfrí en mun hefja aftur starfsemi í lok sumars og verða nánari tímasetningar auglýstar síðar.

Verkefnið er þróunarverkefni sem Reykjanesbær og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum vinna saman með það að markmiði að skapa notalegan vettvang fyrir íbúa af erlendum uppruna til að æfa sig í íslensku í afslöppuðu umhverfi. Á samverustundunum gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í léttu spjalli og spilum þar sem íslenskan fær að njóta sín. Engin krafa er gerð um ákveðna tungumálakunnáttu og eru allir velkomnir, óháð því hvar þeir standa í námi eða tali á íslensku. 

Góð þátttaka var á viðburðunum í vor og hlökkum við mikið til að fara aftur af stað í lok sumars. Facebook hópur hefur verið stofnaður fyrir tungumálakaffið undir nafninu „Viltu kaffi? Tölum íslensku saman“, þar má deila upplýsingum um fjölbreyttar lausnir til að læra íslensku, auka tengsl á milli þeirra sem hafa mætt í tungumálakaffið og jafnvel skipuleggja samverustundir utan tungumálakaffisins. Hvetjum áhugasama að vera með í hópnum, nálgast má hópinn hér.

Verkefnið er styrkt af Þróunarsjóði innflytjendamála í gegnum Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.