Beint í efni

Grísk og íslensk ungmenni sameinuðust í Fjörheimum

Vinátta, menning, samvinna og ný tækifæri voru í forgrunni þegar 44 ungmenni frá Íslandi og Grikklandi tóku þátt í alþjóðlegum ungmennaskiptum á vegum Fjörheima og Active Youths frá Florina í Grikklandi.

Dagana 14.–18. október tók Fjörheimar Háaleiti á móti 22 ungmennum frá Active Youths í Florina í Grikklandi. Á móti komu 22 ungmenni frá Fjörheimum Háaleiti og mynduðu hóparnir saman einn stóran og fjölbreyttan hóp. Markmið verkefnisins var meðal annars að efla tengsl milli ungmenna frá ólíkum löndum, kynnast menningu hvors annars og læra í gegnum samveru, skapandi verkefni og óformlegt nám. 

Fjörheimar kynntir fyrir grísku ungmennunum

Á miðvikudeginum hófst dagskráin með undirbúningsvinnu, skemmtilegum hópleikjum og hópefli þar sem ungmennin fengu tækifæri til að kynnast betur og byggja upp traust. Hópurinn heimsótti einnig Listasmiðju Reykjanes þar sem ungmennin fengu innsýn í skapandi starf á svæðinu. 

Kvöldinu lauk með grísku menningarkvöldi í Fjör Háaleiti. Grísku ungmennin sáu um undirbúning kvöldsins, komu með grískan mat sem allir fengu að smakka og kynntu sína menningu með grískum söngvum og hefðbundnum þjóðdönsum. Stemningin var frábær og kvöldið gaf íslensku ungmennunum einstakt tækifæri til að kynnast grískri menningu á lifandi og skemmtilegan hátt. 

Í gegnum verkefnið fengu grísku ungmennin einnig að heimsækja þrjú opin hús á vegum Fjörheima, hvert á sínum stað og degi. Þannig fengu þau að kynnast því hvernig félagsmiðstöðvar starfa á Íslandi og hvernig þær skapa ungmennum öruggt og skemmtilegt umhverfi til samveru, þátttöku og félagslegra tengsla. 

Starfsfræðsla, Open4Skills og yfir 120 ungmenni í Stapa

Á fimmtudeginum heimsótti hópurinn Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem grísku ungmennin tóku þátt í starfsgreinakynningu. Þeim þótti áhugavert að fá innsýn í ólíkar starfsgreinar og tækifæri til náms og starfa á Íslandi. 

Eftir hádegi unnu íslensku og grísku ungmennin saman að verkefnum tengdum Open4Skills, sem snýst um að hjálpa ungu fólki að uppgötva styrkleika sína, áhugasvið og færni sem getur nýst í námi og starfi. Með hjálp stafrænna lausna og verkefna fá þátttakendur tækifæri til að skoða eigin hæfni og sjá nýja möguleika fyrir framtíðina. 

Síðar um daginn heimsótti hópurinn Víkingaheima og skellti sér svo í sund í Stapalaug. Kvöldið endaði með opnu húsi í Fjör Stapa þar sem yfir 120 ungmenni mættu. Það var frábært að sjá hversu margir tóku þátt og hvernig verkefnið skapaði tækifæri fyrir ungmenni til að kynnast nýju fólki og mynda tengsl þvert á menningu og tungumál. 

Youthpass, ratleikur og samvinna

Föstudagurinn hófst á kynningu á Youthpass, evrópsku viðurkenningarskjali sem hjálpar þátttakendum í Erasmus+ verkefnum að ígrunda og gera sér grein fyrir því sem þeir læra í gegnum þátttökuna. Þar er meðal annars lögð áhersla á samskipti, samvinnu, tungumál, menningarlegan skilning, sjálfstraust og hæfni til að leysa verkefni með öðrum. 

Youthpass tengdist verkefninu vel þar sem ungmennin lærðu ekki aðeins með því að taka þátt í dagskránni heldur einnig með því að vinna saman, takast á við nýjar aðstæður og kynnast fólki með annan bakgrunn. Með því að velta reynslunni fyrir sér geta þau betur áttað sig á þeirri færni sem þau öðlast og hvernig hún nýtist þeim áfram í námi, starfi og daglegu lífi. 

Eftir hádegismat tók við ratleikja-bingó þar sem ungmennin fóru saman í skemmtileg verkefni og könnuðu bæinn. Leiðin endaði í Duus hús þar sem hópurinn skoðaði sýningu og tók þátt í Kahoot-spurningakeppni. Um kvöldið var síðan haldið áfram í 88 Húsinu þar sem var opið hús og mikið stuð í Fjör Hafnó. 

Óvissuferð um perlur Reykjaness

Laugardagurinn var helgaður óvissuferð um Reykjanesið þar sem ungmennin fengu að kynnast náttúru, afþreyingu og áhugaverðum stöðum á svæðinu. Hópurinn stoppaði meðal annars í íþróttahúsinu í Grindavík þar sem boðið var upp á hádegismat og ungmennin fengu að spreyta sig í ýmsum leikjum og íþróttum. 

Ferðinni lauk í Reykjavík þar sem hópurinn upplifði FlyOver Iceland, einstaka upplifun sem gaf bæði íslensku og grísku ungmennunum nýja sýn á íslenska náttúru. Að því loknu fengu þau að rölta um í Reykjavík og snæddu þau saman kvöldmat áður en grísku gestirnir héldu heim á leið. 

Minningar og tengsl sem lifa áfram

Ungmennaskiptin voru frábært tækifæri fyrir íslensk og grísk ungmenni til að kynnast, læra hvert af öðru og skapa minningar sem þau taka með sér áfram. Verkefnið sýndi jafnframt mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í æskulýðsstarfi og hvernig óformlegt nám getur hjálpað ungmennum að efla sjálfstraust, samskiptahæfni og skilning á ólíkri menningu. 

Fjörheimar þakka Active Youths og öllum þátttakendum fyrir frábæra samveru, jákvæðni og þátttöku í verkefninu. Einnig er öllum samstarfsaðilum og þeim sem lögðu hönd á plóg við framkvæmd dagskrárinnar þakkað kærlega fyrir sitt framlag. 

Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og fleiri tækifæra til að tengja saman ungmenni, menningu og nýjar hugmyndir!

Grísk og íslensk ungmenni sameinuðust í Fjörheimum - Reykjanesbær