Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Hafnargatan og gamli bærinn Keflavík vinnslutilaga

Reykjanesbær leggur fram vinnslutillögu Nordic Office of Architecture fyrir deiliskipulag. Skipulagssvæðið nær til svæðis sem er skilgreint sem miðsvæði M2 í gildandi aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035. Skipulagssvæðið skiptist upp í ólík svæði. Þar er m.a. Hafnargata og umhverfi hennar sem er fremur þéttbýlt svæði og svo er einnig að finna óbyggt svæði á milli Hafnargötu og Ægisgötu sem situr á landfyllingu ásamt grænu svæði sem er mikið nýtt á hátíðardögum í bænum.

Mikil tækifæri eru til uppbyggingar á svæðinu og góðir þróunarmöguleikar til að mynda sterka heild og líflegt miðbæjarumhverfi.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta geta lagt fram umsagnir eða andmæli í skipulagsgátt málsnúmer 490/2024 til 9. apríl 2026