Heilsuvika í Reykjanesbæ fer fram dagana 5.–11. október og verður fjölbreytt heilsutengd dagskrá í boði víðs vegar um bæinn.
Vikan hét áður Lýðheilsu- og forvarnarvika en ber nú heitið Heilsuvika í Reykjanesbæ. Markmiðið er að hvetja íbúa til að huga að heilsu og vellíðan og kynna fjölbreytt tækifæri til hreyfingar, fræðslu, samveru og heilsueflingar.
Fjöldi aðila úr samfélaginu tekur þátt í vikunni, þar á meðal skólar, íþróttafélög, stofnanir Reykjanesbæjar, fyrirtæki og félagasamtök. Boðið verður upp á ýmislegt fyrir ólíka aldurshópa og margt af því sem í boði er verður án endurgjalds.
Meðal þess sem verður í boði má nefna opnar æfingar hjá íþróttafélögum, ókeypis í sund í Vatnaveröld og Stapalaug 9.október, opin Heilsufarsskoðun á Bókasafni Reykjanesbæjar, Hugleiðslu- og heilunarkvöld í Ómsetrinu, Stólaleikfimi og Boccia fyrir eldri íbúa, Krakkajóga fyrir þá yngri, Heilsugusa í Hólmi Heilsu og opin vika í Sporthúsinu svo eitthvað sé nefnt. Auk þessa verður áhersla á heilsu í dagskrá í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins sem bjóða upp á ýmis tækifæri til að prófa nýja hreyfingu eða heilsutengda þjónustu.
Heilsa snýst þó um meira en bara hreyfingu. Í Heilsuvikunni verður einnig lögð áhersla á andlega og félagslega vellíðan, góðar venjur, forvarnir og samveru. Dagskráin endurspeglar því heilsu í víðum skilningi og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Öll dagskrá Heilsuviku í Reykjanesbæ verður aðgengileg í viðburðadagatali á nýjum vef Reykjanesbæjar, þar sem hægt verður að sjá nánari upplýsingar um viðburði, tímasetningar og skráningu.
Við hvetjum íbúa til að kynna sér dagskrána og nýta vikuna til að gera eitthvað gott fyrir heilsuna - hvort sem það er að prófa eitthvað nýtt, hreyfa sig, fræðast eða einfaldlega eiga góða stund með öðrum.
