Hlýjan, gjaldfrjáls ráðgjafarþjónusta fyrir ungmenni á vegum Reykjanesbæjar, fagnar eins árs afmæli þann 17. nóvember. Þjónustan hefur fengið afar góðar viðtökur og hafa viðtalstímar verið nánast undantekningarlaust fullbókaðir frá því starfsemin hófst.
Hlýjan er fyrir ungmenni á aldrinum 13–18 ára og býður upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf, stuðning og samtöl um það sem kann að liggja þeim á hjarta. Þjónustan byggir á Solihull-nálguninni þar sem umhygð, gagnkvæmni og atferlismótun eru í fyrirrúmi. Áhersla er lögð á að skapa traust og tilfinningalegt öryggi og gefa ungmennum rými til að tjá sig á eigin forsendum. Markmiðið er að veita snemmtækan stuðning og auðvelda ungmennum að leita sér aðstoðar áður en vandi verður umfangsmeiri.
Hugmyndin að Hlýjunni varð til í kjölfar ákalls ungmenna um aukinn stuðning við andlega líðan í heimabyggð. Þeir sem komu að stofnun þjónustunnar eru Davíð Már Gunnarsson, Díana Hilmarsdóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Karítas Lára Rafnkelsdóttir Ólafur Bergur Ólafsson og Þórdís Halla Jónsdóttir.
Nafnið Hlýjan varð fyrir valinu í kjölfar nafnasamkeppni þar sem Kolbrún Dís Snorradóttir bar sigur úr býtum með tillögu sinni. Nafnið endurspeglar vel stefnu Hlýjunnar sem er hlýlegt og aðgengilegt umhverfi þar sem ungmenni geta leitað stuðnings án hindrana.

Á fyrsta starfsári Hlýjunnar hafa fjölmörg ungmenni nýtt sér þjónustuna. Misjafnt er hversu mörg viðtöl hvert ungmenni sækir en sum koma í eitt eða fáein viðtöl á meðan önnur nýta sér stuðninginn yfir lengri tíma. Eftirspurnin hefur verið mikil allt frá upphafi og hafa viðtalstímar verið nánast undantekningarlaust fullbókaðir. Til að mæta þessari eftirspurn hefur Hlýjan einnig byrjað að bjóða upp á viðtalstíma á föstudögum. Fyrirtæki og félagasamtök á svæðinu hafa veitt starfseminni mikilvæga styrki sem hafa gert þennan vöxt mögulegan sem Hlýjan er mjög þakklát fyrir.
Breytingar hafa jafnframt orðið á ráðgjafateyminu. Karítas Lára Rafnkelsdóttir er í fæðingarorlofi og hefur Bergsveinn Andri Halldórsson hafið störf sem ráðgjafi í Hlýjunni.
Hlýjan er staðsett að Hafnargötu 88 í Reykjanesbæ. Ungmenni geta sjálf bókað viðtal í gegnum NOONA án tilvísunar og er þjónustan þeim að kostnaðarlausu. Fyrsta starfsár Hlýjunnar hefur sýnt fram á mikla þörf fyrir aðgengilega ráðgjöf fyrir ungmenni og mikilvægi þess að halda áfram að þróa þjónustuna í takt við þarfir ungmenna á svæðinu.

