Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Höldum gönguleiðum greiðum og umferðinni öruggri

Garðyrkjudeild Reykjanesbæjar fer um bæinn þessa dagana og klippir gróður sem skyggir á umferðarmerki. Sýnileg merki og gott útsýni skipta máli fyrir öryggi allra vegfarenda.

Við hvetjum íbúa til að líta á gróður við lóðamörk sín og klippa greinar og runna sem vaxa út á gangstéttir og aðrar gönguleiðir. Gönguleiðir þurfa að vera greiðfærar fyrir alla, þar á meðal fólk með barnavagna, í hjólastól og með skerta sjón. Einnig er mikilvægt að gróður byrgi ekki sýn við gatnamót og innkeyrslur eða skyggi á umferðarmerki.

Með því að sinna gróðrinum hjálpumst við að halda leiðum greiðum og umferðinni öruggri.

Takk fyrir að leggja ykkar af mörkum!