Beint í efni

Hrekkjavakan í Reykjanesbæ

Það er sannkölluð hrekkjavökustemning fram undan í Reykjanesbæ og nóg um að vera fyrir alla.

Bærinn okkar fyllist af skemmtilegum viðburðum, draugalegum uppákomum og alls kyns hrekkjavökugleði. Það ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og átt notalega, en kannski örlítið óhugnanlega stund.

Málverk sem lýsir í myrkvi - smiðja með Freyju Eilíf

Laugardaginn 31. október frá 13:00 – 14:00 – Duusgata 2-8

  • Í tilefni af hrekkjavöku og komandi vetri býður Byggðasafn Reykjanesbæjar gestum að skapa dularfull listaverk með litum sem lýsa í myrkri. Þegar ljósin eru slökkt birtast myndirnar í nýju ljósi.
  • Listakonan Freyja Eilíf stýrir smiðjunni.
  • Aðgangur er ókeypis.

Dúlludraugahús hjá Njarðvíkursókn

Laugardaginn 31. október, kl. 17:00–20:00 - í safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík (Njarðvíkurbraut 38)

  • Dúlludraugahúsið er sérstaklega hugsað fyrir yngstu börnin og er því ekki ógnvekjandi draugahús, heldur skemmtilegur og notalegur staður þar sem ýmislegt verður í boði fyrir börnin.

Mannakorn í Hljómahöll

Laugardaginn 31. október kl. 20:00 – Hljómahöll

  • Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að sjá Mannakorn á sviði.
  • Hægt er að finna miða hér.

Undir sömu stjörnu – opnunarviðburður Óperunnar

Sunnudaginn 1. nóvember kl. 16:00 – Hljómahöll

  • Suðurnesjafólk verður þar í öndvegi ásamt söngvurum Óperunnar og leikurum Þjóðleikhússins.
  • Hægt er að finna miða hér.

Hlökkum til að sjá bæinn iða af lífi, búningum og skemmtilegum hrekkjavökustundum!