Logi Þór Ágústsson tók í fyrsta sinn sæti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar á fundi hennar þriðjudaginn 3. nóvember. Logi er 22 ára gamall og er þar með yngsti fulltrúinn sem tekið hefur sæti í bæjarstjórn frá stofnun sveitarfélagsins árið 1994.
Logi tók sæti sem varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og tók meðal annars til máls um leikskólamál og málefni barna og fjölskyldna, sem eru honum sérstaklega hugleikin.
Fyrra aldursmetið átti Ísak Ernir Kristinsson, sem var 24 ára gamall þegar hann tók sæti í bæjarstjórn árið 2017.
Reykjanesbær óskar Loga til hamingju með þennan áfanga og fagnar þátttöku ungs fólks í sveitarstjórnarmálum.
