Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

María Rós Skúladóttir hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra velferðarsviðs

María Rós er félagsráðgjafi með MLM-gráðu í forystu og stjórnun, með áherslu á verkefnastjórnun, frá Háskólanum á Bifröst. Hún starfar nú á ráðgjafarsviði KPMG sem sérfræðingur í rekstrarráðgjöf með sérstaka áherslu á velferðarþjónustu. María Rós býr yfir víðtækri reynslu af velferðarmálum, stjórnun og opinberri stjórnsýslu. Áður en hún hóf störf hjá KPMG gegndi hún meðal annars stöðu forstöðumanns öldrunarþjónustu hjá Reykjanesbæ og deildarstjóra félagsþjónustu Suðurnesjabæjar. Í gegnum störf sín hefur María Rós öðlast umfangsmikla stjórnunarreynslu og borið ábyrgð á rekstri, mannauðsmálum, fjárhagsáætlunum og stefnumótun. Hún hefur jafnframt leitt fjölbreytt þróunar- og breytingaverkefni þar sem áhersla hefur verið lögð á að efla gæði þjónustu, auka skilvirkni í rekstri og stuðla að faglegri þróun.

Við hlökkum til að fá Maríu Rós til liðs við okkur og munum tilkynna síðar hvenær hún hefur störf.