Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Njarðvík Íslandsmeistarar í körfubolta

Njarðvík urðu Íslandsmeistarar í körfubolta árið 2026 eftir glæsilegan sigur gegn Haukum í úrslitum Bónusdeildarinnar.

Njarðvík urðu Íslandsmeistarar í körfubolta árið 2026 eftir glæsilegan sigur gegn Haukum í úrslitum Bónusdeildarinnar. Liðið tryggði sér titilinn með 95-70 sigri á heimavelli á sunnudaginn og vann einvígið 3-1.

Stemningin var mögnuð í troðfullri höll þar sem stuðningsmenn liðsins létu vel í sér heyra og fögnuðu sigrinum innilega með liðinu.

Þetta er í þriðja sinn í sögu félagsins sem Njarðvík hampar Íslandsmeistaratitlinum í kvennaflokki.

Reykjanesbær óskar liðinu, þjálfurum og stuðningsfólki hjartanlega til hamingju með þennan frábæra árangur.